Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Side 99
Félagið hefur ýmis mál á stefnuskrá sinni en um þessar mundir ber hæst bar-
áttuna fyrir hærri launum dómara og betri eftirlaunakjörum. Laun dómara í
Þýskalandi eru ákveðin með lögum og launakerfið er mjög flókið eins og því var
lýst. Þá tekur félagið um þessar mundir virkan þátt í endurskoðun laga um
meðferð einkamála sem að stofni til em frá árinu 1900. Dómarafélagið hefur efnt
til mannréttindaverðlauna dómara og saksóknara og hefur veitt þau annað hvort
ár frá árinu 1991. Verðlaunin hafa fengið ýmist dómari eða saksóknari í Perú,
Nígeríu, Tyrklandi, Mexíkó, Hvíta-Rússlandi og nú síðast árið 2001 dómari í
Gvatemala. Þá hefur dómarafélagið stofnað sjóð til styrktar eftirlifandi bömum
dómara og saksóknara í Kólumbíu. í sjóðinn hafa safnast frá ársbyrjun 2000 1,5
milljónir þýskra marka. Dómarafélagið gefur mánaðarlega út blað, nokkuð
veglegt, Deutsche RichterZeitung. Ljóst er að félagið er öflugt og athafnasamt.
Að kvöldi þessa dags dreifðust menn víða til kvöldverðar. Matur í Berlín er
staðgóður og á skikkanlegu verði yfirleitt. Stöku dómari hafði dálæti á svína-
skönkum sem heita Eisbein á þýsku.
Miðvikudaginn 5. september var farið í heimsókn í héraðsdómstól í Berlín
(Landgericht) þann sem fer með einkamál. Þar tók á móti okkur dómarinn
Lothar Júnemann, formaður Berlínardeildar Dómarafélags Þýskalands, en hann
höfðum við hitt daginn áður hjá dómarafélaginu. Fyrst fengum við lýsingu á
þeim málum sem taka átti fyrir og á þeim hluta réttarfarsins sem líklegt var að
reyndi á við meðferð þessara mála. Fylgdumst við með meðferð málanna, sem
voru tvö, annað sættist en hitt ekki. Það sem við sáum af meðferð þessara mála
hefði eins getað farið fram í íslenskum réttarsal, þó má e.t.v. segja að dómarinn
hafi lagt sig meira fram við að ná sáttum en almennt gerist hjá okkur.
Dómstóllinn er til húsa í nokkuð gamalli byggingu sem byggt hefur verið
við. Dómsalurinn þar sem þinghaldið fór fram var í upprunalegri mynd með
töluverðu máluðu útflúri. Dómsalir í nýju byggingunni voru einfaldir að allri
gerð. í dómsölunum voru tölvur en dómaramir hafa enn ekki fengið tölvur til
eigin nota. Ekki er innranet í dómstólnum. Algengast er að tveir dómarar deili
sömu skrifstofunni, jafnvel þrír. Til er að einn dómari hafi eigin skrifstofu en
það er sjaldgæft. Skrifstofur þessar minna mjög á skrifstofurnar í gamla Hæsta-
réttarhúsinu. Þetta leiðir m.a. til þess að dómarar vinna mikið heima og nota þá
eigin tölvur. Að þessari skoðun lokinni voru dómstjóramir tveir, sem í hópnum
vom, nokkuð roggnir með sig og bar meira á þeim í bili en annars.
Eftir hádegið var farið í þinghúsið í Berlín (Bundestag). Þar fengum við
klukkutíma leiðsögn um húsið ásamt stuttri lýsingu á þinginu sjálfu. Þinghúsið
á sér ekki langa sögu þegar litið er til frægra bygginga í Berlín. Bygging hússins
hófst 1884. Þinghússbruninn 1933 er kunnari en frá þurfi að segja en sagt er að
Hitler hafi verið þar að verki. Lauk þar með dögum þjóðþingsins um sinn.
Húsið var endurreist eftir heimsstyrjöldina en ráðist var í viðamiklar breytingar
og endurbætur eftir sameiningu þýsku ríkjanna og var þeim lokið í apríl 1999.
Hið mikla glerhvolfþak í miðju hins gamla húss gefur því feikisterkan svip,
nokkuð framandi en furðulega aðlaðandi.
247