Ægir - 01.08.1999, Side 54
ISLENSKA SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN - AUKABLAÐ ÆGIS
Þorleifur Gíslason framkvæmdastjóri, Gunnlaugur Þorleifsson og Eyjólfur Þorteifsson.
Heildarlausnir
fyrir uinnslulin ur
„Það má segja að sérstaða okkar felist í heildarlausnum á búnaði
fyrir háþrýst vökvakerfi. í flestum tilfellum er um svipaða huti að
ræða s.s. hönnun á vökvakerfum, smíði á spilum og dælustöðvum
sem eiga að þjóna fyrirfram ákveðnum tilgangi", segir Þorleifur
Gíslason, framkvæmdastjóri Vökvatækja ehf.
„Það sem gerir þetta dálítið flók-
ið og spennandi er að engin tvö
kerfi eru í raun eins, þ.e.a.s. að-
stæður geta verið mismunandi
og því þarf að fara mjög gæti-
lega í að hanna kerfi og prufu-
keyra búnaðinn í fyrsta sinn. Hér
fer því saman mikil reynsla,
þekking og góð samvinna við
viðskiptavinina. Með þessu móti
höfum við byggt upp kjarna af
traustum og samstarfsgóðum
viðskiptavinum."
Fyrirtækið var stofnað 1983 af
núverandi framkvæmdastjóra
Þorleifi Gíslasyni og hefur verið
til húsa að Bygggörðum 5 á Sel-
tjarnarnesi síðastliðin 10 ár. Þar
er öll framleiðsla fyrirtækisins til
húsa ásamt verslun með hluti
fyrir háþrýst vökvakerfi. Allt frá
stofnun fyrirtækisins hafa Vökva-
tæki verið með eigin framleiðslu
ásamt innflutningi og þjónustu
við sjávarútveginn og að sjálf-
sögðu annan iðnað í landi. í upp-
hafi var framleiðslan aðallega
vökuataeki ehf.
fólgin í smíði á spilum og dælu-
stöðvum. Þennan búnað er að
finna víða hvort sem er á landi, í
togurum eða smærri bátum.
Þess má geta að allir kranar ís-
lensku varðskipanna eru með
spil frá Vökvatækjum, sem hafa
m.a. verið tekin út af L’loyds.
Nánast undantekningarlaust
nota Vökvatæki hina heims-
þekktu og þaulreyndu stimpil-
mótora frá Vaimet í Finnlandi í
Vökvatæki ehf.
Bygggarðar 5
170 Seltjarnarnesi
Sími: 561 2209
Fax: 561 2226
eigin framleiðslu ásamt því að
vera með einkaumboð og þjón-
ustu á þeim hér á landi, en þess-
ir vökvamótorar hafa reynst afar
vel.
Vökvatæki sérhæfa sig í heild-
arlausnum á vökvabúnaði fyrir
vinnslulínur í togara, allt frá hönn-
un vökvakerfa og sölu þeirra hluta
sem til þarf. Fyrirtækið framleiðir
mikið úr ryðfríu stáli og má þar
nefna þrýstistýrða magnloka, raf-
loka, stjórnloka o.fl. en það var
einmitt árið 1992 sem grunnur var
lagður að framleiðslu loka fyrir
vinnslulínur. Þeir hjá Vökva-
tækjum sáu fram á mikla þörf fyr-
ir alryðfría loka sem hefðu mikið
tæringarþol gagnvart sjávarseltu.
1993 var svo fyrsta pöntunin af-
greidd, vel yfir 100 stk. í nýjan
togara sem kom til landsins. Upp
frá því hefur svo verið nóg að
gera í þessari deild og sífellt fleiri
tegundum verið bætt inn í til þess
að koma til móts við þarfir við-
skiptavina.
Fyrirtækið hefur smíðað drag-
nótarvindur í ýmsa báta og nú er
verið að smíða stórar vindur í
Hástein ÁR-8 svo dæmi sé
nefnt. Vökvatæki geta séð um
alla verkþætti óski viðskiptavin-
urinn eftir því, þ.e. hönnun,
smíði, niðursetningu og sölu á
efni, en fyrirtækið hefur einmitt
byggt upp mjög öflugan lager af
hlutum fyrir háþrýst vökvakerfi.
Á sýningunni leggja Vökva-
tæki sérstaka áherslu á ryðfría
framleiðslu sína ásamt ýmsum
nýjungum, s.s. fínsíunarstöðvum
fyrir vökvakerfi, rafmótora o.fl.
Mikið er lagt upp úr því að
þjónusta sé eins góð og framast
er unnt að veita og að sögn Þor-
leifs er verð hjá þeim fullkomlega
samkeppnishæft á markaðinum.
52
ÆGl [R