Ægir - 01.08.1999, Side 70
ÍSLENSKA SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN - AUKABLAÐ ÆGIS
Pétur Már Jónsson framkvæmdastjóri og Stefanía M. Jónsdóttir starfsmaður í
fyrirtækjaþjónustu.
Öfíugt þjónustu-
net um lantí allt
VÍS býður fyrirtækjum og einstaklingum í atvinnurekstri upp á vá-
tryggingavernd sem er sniðin að þörfum hvers og eins. Vátrygg-
ingarnar er í flestum tilvikum hægt að setja saman í einn pakka
með einum gjaiddaga sem auðveldar viðskiptavininum að hafa
yfirsýn yfir vátryggingavernd sína.
„Meginmarkmið okkar með þátt-
töku í íslensku sjávarútvegssýn-
ingunni er að kynna það vöru-
framboð og þá þjónustu sem við
bjóðum íslensku atvinnulífi upp
á, hvort heldur er til lands eða
sjávar,“ sagði Pétur Már Jónsson
framkvæmdastjóri atvinnutrygg-
ingasviðs Vátryggingafélags fs-
lands í samtali við Ægi.
„Markmið er að geta veitt við-
skiptavininum, hvort sem hann
er stór eða smár, fyrirtaks þjón-
ustu og ráðgjöf sem hentar
hverjum og einum. Við ráðleggj-
um ákveðna lágmarksvernd en
síðan er hægt að fá ýmiss konar
tryggingar gagnavart viöbótará-
hættu,“ sagði Pétur Már.
VIS hefur á að skipa góðu
starfsfólki með víðtæka þekk-
ingu á vátryggingum til að ráð-
leggja viðskiptavinum. Ef til tjóns
kemur er hægt að ná til fulltrúa
félagsins að nóttu sem á degi.
Þetta er mikilvægt því fyrstu við-
brögðin geta skipt sköpum.
vútryggingafé-
lag íslands hf.
„Við hjá VÍS höfum mikla
reynslu í tryggingum á skipum
og bátum af öllum stærðum og
gerðum," sagði Pétur Már.
VÍS þjónar alls konar stórum
og smáum fyrirtækjum í sjávarút-
vegi, bæði í útgerð og vinnslu.
Starfsmenn fyrirtækisins sem
sinna fyrirtækjum á þessu sviði
hafa starfsreynslu og menntun úr
sjávarútvegi og tengdum
68 AGIR
Vátryggingafélag
íslands hf.
Ármúla 3
108 Reykjavík
Sími: 560 5060
Netfang: upptysingar@vis.is
þjónustugreinum. Þá veitir fyrir-
tækið ráðgjöf í forvörnum og í
því að draga úr áhættu eða við
áhættustjórnun. Þá er einnig um
að ræða aðstoð til að draga úr
tjóni sem þegar er orðið.
„Við höfum nýverið komið á
fót sérstöku þjónustuveri, fyrstir
íslenskra vátryggingafélaga. Þar
er unnt að ná í starfsfólk okkar
frá kl 8 á morgnana til kl. 19 á
kvöldin. Þetta höfum við gert til
að þjóna viðskiptavinum okkar,
sérstaklega einstaklingum, enn
betur,“ segir Pétur Már.
Umhverfis landið, á 61 stað,
má finna skrifstofu VÍS eða um-
boðsmann, sem auðveldar
landsmönnum að komast í
samband við félagið. Þetta
hentar ekki síst eigendum smá-
báta og öðrum sem eru með
rekstur. Segja má að VÍS sé með
umboðsmenn á nær öllum þeim
stöðum þar sem gerður er út
bátur er gerður. Ef einhver slíkur
staður er undanskilinn er fullvíst
að næsta umboð VÍS er skammt
frá.
„Hörð samkeppni er á íslensk-
um vátryggingamarkaði og við
hjá VÍS leggjum okkur fram um
að veita fyrsta flokks þjónustu
ásamt því að bjóða góða vá-
tryggingavernd á hagstæðu
verði. Við hvetjum atvinnurek-
endur og forsvarsmenn fyrir-
tækja til að hafa samband við
okkur vegna vátryggingaverndar
sinnar og við könum hvort við
getum ekki orðið að liði,“ sagði
Pétur Már að lokum.
J