Ægir - 01.08.1999, Blaðsíða 72
ÍSLENSKA SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN - AUKABLAÐ ÆGIS
Styrmir Þór Bragason sjóðsstjóri.
Fjárfestingar-
sjóðurinn ÍS-1S
Hinn 10. júlí síðastliðinn átti ÍS-15, fjárfestingarsjóður Búnaðar-
bankans, eins árs afmæli. Meðalávöxtun sjóðsins hefur verið
48% á fyrsta starfsárinu en á sama tíma hækkaði úrvalsvísitalan
um 8%.
Sjóðurinn hefur skilað góðum ár-
angri á þessum tíma, en fjárfest-
ingarstefna hans er nokkuð sér-
stök. Stefna sjóðsins felst í því
að fjárfesta í fáum, sterkum fyrir-
tækjum og ná þannig góðum ár-
angri þegar til lengri tíma er litið.
Þá fylgist sjóðstjóri ÍS-15 vel
með um 30 fyrirtækjum og út frá
því eru fimm til tíu vænlegustu
félögin á markaðinum valin út og
fylgst grannt með þeim. Þessi
hugmyndafræði er nefnd fókus-
fjárfesting.
Nafnið, ÍS-15, er til komið þar
sem að jafnaði ætlar sjóðurinn
ekki að eiga í fleiri en 15 félögum
hverju sinni. Annað markmið
sjóðsins er að 75% af eignum
hans samanstandi af ekki fleiri
en 5 til 7 félögum á hverjum
tíma.
Að sögn Styrmis Bragasonar,
sjóðstjóra ÍS —15 og Hlutabréfa-
sjóðs Búnaðarbankans, er sjóð-
urinn áhættusækinn, þar sem
eingöngu er fjárfest í hlutabréf-
Búnaðarbank-
inn - verðhréf
um. Hann segir að sú stefna sem
flestir hlutabréfasjóðir viðhafi, sé
að dreifa áhættunni milli hluta-
bréfa fleiri fyrirtækja og skulda-
bréfa. Því hefur ÍS-15 töluverða
sérstöðu sökum fjárfestingar-
stefnu sinnar auk þess sem hann
er stærsti íslenski sjóðurinn sem
fjárfestir eingöngu í hlutabréfum.
Styrmir telur að það enga tilviljun
að þessi stefna sé jafn árangurs-
rík og raun ber vitni, þ.e. að fjár-
festa í fáum, öflugum fyrirtækj-
um. Með því að dreifa áhættunni
á of mörg fyrirtæki og slétta út
alla hóla og fellingar á markaðin-
um sé erfitt að ná betri árangri en
meðaltal markaðarins.
Sjóðurinn hefur viðskipti nán-
ast daglega og er rekstur hans
aðskilinn öðrum rekstri Búnaðar-
bankans. Hann er aðallega ætl-
aður stærri fjárfestum þar sem
lágmarksupphæð til fjárfestingar
í sjóðnum er tvær milljónir. Að
sögn Styrmis hafa þó fjárfesting-
ar einstaklinga aukist.
Yfirmenn sjóðsins telja að það
geti ráði úrslitum í rekstri fyrir-
tækja hversu vel starfsfólk
stendur sig og að lykillinn að
góðum rekstri sé gott starfsfólk.
Þeir telja að til að ná hámarksár-
angri verði starfsfólkið að hafa
einhverra hagsmuna að gæta, þá
leggi það meiri metnað í störf sín.
Til að svo verði þurfa tekjur að
vera tengdar afkomu fyrirtækja.
ÍS-15 velur fjárfestingar sínar
vandlega með hagnað til langs
tíma i huga. Að sjóðnum standa
einstaklingar með mikla reynslu
af viðskiptum á innlendum hluta-
bréfamarkaði.
70 ÆGIR