Ægir - 01.08.1999, Side 104
I'SLENSKA SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN - AUKABLAÐ ÆGIS
1 fHI \
Brimrún ehf.
Hólmaslóð 4
101 Reykjavík
Sími: 561 0160
Fax: 561 0163
Netfang:
brimrun@brimrun. is
Björn Árnason framkvæmdastjóri og Sveinn Kristján Sveinsson sölustjóri við nýja FR-
2115 radarinn frá Furuno.
Á annað hunarað
„undrar" seldir
Brimrún ehf. hefur haft umboð fyrir Furuno á íslandi í tæp 7 ár. Á
þessum tíma hefur salan verið meiri heldur en reiknað hafði ver-
ið með, bæði hvað varðar fiskileitar- og siglingatæki og fjar-
skiptabúnað.
„Ratsjár frá Furuno hafa alltaf
selst vel en hérlendis hefur rad-
arinn FR-2110, eða „undri“ eins
og hann er kallaður manna á
meðal, farið fram úr öllum áætl-
unum. Ríflega 140 radarar hafa
selst hér á landi á rúmum 5
árum frá því tækið kom fyrst á
markað. Svo mikil eftirspurn
skýrist af gæðum radarsins,
ekki síst nýrri tækni í stillingum
gegn truflunum," segir Björn
Arnason, framkvæmdastjóri
Brimrúnar ehf.
í ár kom Furuno með nýjan
radar sem leysir FR-2110 af
hólmi, FR-2115. Helstu breyting-
arnar eru þær að skjárinn er 21“
í stað 20“ áður og er með meiri
upplausn, 1280 x 1024 í stað
800 x 1024. Reyndar er hægt að
fá radarinn án skjás og tengja
hann við TFT tölvuskjá. Nýi rad-
arinn er með „arctic skanner-
Brimrún ehf.
blaði“ sem er sérstaklega hann-
að til að draga úr áhrifum ísingar
og vinds. Þá er ARPA fyrir 40
skip nú, en var áður fyrir 30 skip
og fleira mætti nefna. Sem fyrr
eru skalar frá 0,125 - 96 cm og
radarinn bæði til í X- og S-bandi.
í ár kom Furuno einnig með
nýjan radar fyrir minni skip og
báta, FR-7062. Þessi radar er
með 12“ skjá, 6 kW sendiafli,
með skala frá 0,125 - 64 cm og
með eða án 10 skipa ARPA.
„Þegar hafa verið keyptir á ann-
an tug radara þessarar gerðar og
eru notendurnir almennt mjög
ánægðir með radarinn. FR-7062
þykir vera á góðu verði miðað
við stærð og gæði en með ARPA
kostar hann innan við 600.000
krónur," segir Björn.
Um þessar mundir er Brimrún
að afhenda búnað í nýsmíði Har-
aldar Böðvarssonar hf. í Chile,
Furuno búnað hvað varðar öll
helstu fjarskipta-, siglinga- og
fiskileitartæki, svo sem tvaer
ARPA ratsjár, tvö GPS staðsetn-
ingartæki, einn höfuðlínumæli,
tvo dýptarmæla, þrjá sónara,
einn straummæli, GMDSS fjar-
skiptabúnað o.fl. Auk þessa út-
vegar Brimrún símkerfi, kallkerfi,
sjónvörp, útvörp o.fl. þess háttar
í skipið. Búnaðurinn verður sett-
ur upp og tengdur af starfs-
mönnum skipasmíðastöðvarinn-
ar í Chile en ábyrgðir verða að
fullu bundnar Brimrúnu.
102 M3m
I