Ægir - 01.08.1999, Page 140
Q
CQ
O
$
•í>.
05
05
CD
UJ
cc
'í
05
05
3*
UJ
05
BrautryðiBntíur í
eltísneytisviðskiptum
Allt frá stofnun Olíufélagsins hf. árið 1946 hefur íslenskur sjávar-
útvegur verið þungamiðjan í rekstri fyrirtækisins. Strax á fyrstu
rekstrarárum fyrirtækisins náði það markaðsstöðu sem stærsti
olíuseljandi landsins til sjós og lands, stöðu sem það hefur hald-
ið í rúmlega hálfa öld.
„Skjóta forystustöðu á markað-
inum má eflaust þakka áræði og
útsjónarsemi stofnenda fyrirtæk-
isins sem keyptu aðstöðu
Bandaríkjahers til innflutnings og
afgreiðslu skipaeldsneytis í Hval-
firði. Sú aðstaða, auk búnaðar
sem fylgdi með í kaupunum,
stuðlaði að tankvæðingu elds-
neytisbirgðastöðva um allt land.
Á sama tíma voru nýsköpunar-
togararnir að koma til landsins
en þeir voru fyrstu stóru fiski-
skipin sem notuðu olíu sem elds-
neyti. Það er hætt við að rekstur
þessara skipa hefði ekki orðið
jafn þægilegur og raun varð á ef
fyrirtæki með aðstöðu eins og
okkar hefði ekki verið til staðar,"
segir Herbert Herbertsson hjá
ESSO.
Olíufélagið hf. hefur frá fyrstu
tíð verið einkaumboðsaðili fyrir
ESSO sem er eitt elsta og
Olíufélagið hf.
Esso:
stærsta olíufyrirtæki heims. Sú
þekking og framleiðslugæði sem
því fyrirtæki fylgir hefur reynst
Olíufélaginu meira en venjulegt
veganesti. Þó svo að skipst hafi
á skin og skúrir í rekstri félagsins
í þau 53 ár sem það hefur starf-
Olíufélagið hf. Esso
Suðurlandsbraut 18
108 Reykjavík
Sími: 560 3300
Fax: 560 3350
Netfang: esso@esso.is
að hefur viðskiptatraust þess
stöðugt aukist. Þeir sem þekkja
söguna gera sér grein fyrir að í
40 ár var innflutningur og sala
eldsneytisolíu að mestu leyti háð
reglum stjórnvalda.
Herbert segir það hafa ræki-
lega sýnt sig að á þeim árum
sem eru liðin síðan frjáls innflutn-
ingur olíu til landsins hófst aftur,
þá hefur eldsneytistegundum
fjölgað til samræmis við þær
kröfur sem til eldsneytis eru
gerðar og að verð hefur lækkaö
verulega til samræmis við það
sem er erlendis. Hann segir
einnig að á þessu sviði sem öðr-
um í eldsneytisviðskiptum hafj
Olíufélagið hf. verið j
forystuhlutverki. „Félagið hafði
forgöngu um stofnun olíudreif-
ingarfyrirtækis til lækkunar dreif-
ingarkostnaðar," segir Herbert.
„Þær eldsneytistegundir sem
Olíufélagið hf. býður nú við-
skiptavinum sínum eru fram-
leiddar og meðhöndlaðar eftir
ströngustu kröfum vélaframleið-
enda, flokkunarfélaga og um-
hverfisyfirvalda í dag. Smurefni
frá ESSO, sem eru meðal þeirra
allra bestu í heiminum, stuðla
einnig að rekstraröryggi og hag-
kvæmni hjá viðskiptavinum Olíu-
félagsins hf.“
Á sýningarbási Olíufélagsins
eru fulltrúar fyrirtækisins til staó-
ar til að veita upplýsingar og svör
við spurningum gesta. „Þeir sem
koma á Sjávarútvegssýninguna
núna ættu að koma við á básn-
um okkar. Þar er kynnt það sem
fyrirtækið býður upp á í vörum
og þjónustu til íslenskrar útgerð-
ar.“
138 ÆGIR