Ægir - 01.08.1999, Síða 156
i S L E N S K A SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN - AUKABLAÐ ÆGIS
Iris Þórarinsdóttir nemi, Hafsteinn Helgason sviðsstjóri umhverfissviðs og Jón Skúli
indriðason verkfræðingur.
/ið breyta
úrgangi / arö
Línuhönnun leggur sérstaka áherslu á að kynna þjónustu um-
hverfissviðs og byggingasviðs stofunnar á Sjávarútvegssýning-
unni 1999. Umhverfissmál og umhverfisstefna eru sífellt mikil-
vægari þáttur og þar eru mörg vannýtt sóknarfæri til að auka arð-
semi í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja. Reynslan sýnir líka að þörf
er fyrir skipulagt og vandað viðhald mannvirkja í atvinnugreininni.
Frárennslismál -
vannýtt auðlind.
Fiskvinnslufyrirtæki eru yfirleitt
stærstu vatnsnotendur í sveitar-
félögum og þar af leiðandi helstu
„uppsprettur" frárennslis. Víða
þarf á næstunni að marka stefnu
í fráveitumálum fiskvinnslufyrir-
tækja í tengslum við fráveitu-
væðingu sveitarfélaga landsins
sem lögum samkvæmt á að vera
lokið fyrir lok árs 2005.
Rannsóknastofa Línuhönnun-
ar sér um að setja upp sérhæfð-
an búnað til að mæla rennsli,
taka sýni og efnagreina meng-
andi afrennsli frá fyrirtækjum.
Komið hefur á daginn að tvö til
þrjú meðalstór fiskvinnslufyrir-
tæki í 1.500-2.500 manna sveit-
arfélögum menga á við 15.000-
25.000 manna íbúabyggð eða
jafnvel mun meira. Mikilvægt er
að átta sig á því að umrædd
mengun er ekkert annað en út-
skolað hráefni, verðmæti sem
hægt er að nýta. Tækni til slíks er
þekkt og ekki dýr.
Vatnsnotkun allt að
50% of mikil
Matvælavinnsla er vatnsfrek og
þar eru einnig gerðar strangar
kröfur til vatnsins sem tiltölulega
Línuhönnun hf.
verkfraeðistofa
nýlega hefur verið skilgreint sem
matvæli hér á landi. Vatnið upp-
fyllir ströngustu kröfur víðast
hvar á íslandi en því miður ekki
alls staðar. Ekki er hægt að tala
um að landsmenn gangi spar-
lega um þessa auðlind sína.
Fiskvinnslan notar þannig að
jafnaði allt að 50% of mikið vatn
og ekki sjaldgæft að sjá meðal-
stór fiskvinnslufyrirtæki greiða
tvær til þrjár milljónir króna ár-
Línuhönnun hf.
Suðurlandsbraut 4a
108 Reykjavík
Sími: 568 0180
Fax: 568 0681
Veffang:
www.lh.is
lega aukalega fyrir vatnsnotkun-
Umhverfissvið Línuhönnunar
bendir á auðveldar og ódýrar
leiðir til vatnssparnaðar þar sem
aðgerðir og búnaður afskrifast á
3-5 mánuðum!
Fiskúrgangur -
óhagkvæm flutningatækni
Mestur fiskúrgangur, sem fellur
til í vinnsluhúsum, fer til vinnslu í
nálægum fiskimjölsverksmiðjurn.
oftar en ekki í fiskikörum, á vöru-
bílspöllum eða í kerrum. Á leið-
inni er úrgangurinn gjarnan
vigtaður á hafnarvoginni. Þetta
gerist þrátt fyrir að flutningaleiöii'
séu mjög stuttar, oft innan við
500 metrar. Slíkir flutningar ern
óþrifalegir, óhagkvæmir og dýrir.
Línuhönnun hefur komist að
þeirri niðurstöðu að flytja megi
fiskúrgang í lokuðum skotkerfum
allt að 600 metra með mjög hag-
kvæmum hætti. Tæknin er ein*
föld og ódýr og dæmi eru um hér
á landi að slíkan búnað hafi mátt
afskrifa á 7-8 mánuðum.
Umhverfisúttekt - lykiliinn að
árangursríku stöðumati
Skipulags- og lóðamál, mark-
aðs- og kynningarmál, stefnu-
mótun á sviði umhverfismála þar
sem ímynd fyrirtækisins er
greind og skipulögð, eru dæh1
um mál sem varða umhverfið og
verða sífellt mikilvægari í harðn-
andi samkeppni. Lykill að árang'
ursríku stöðumati í þessum efn'
um er umhverfisúttekt, frarn'
kvæmd af reyndum og traustum
ráðgjafa. Slík úttekt er tiltölulega
einföld og tekur skamman tíma-
sóknar og arðbærari rekstrar.
154 AGIR