Ægir - 01.08.1999, Síða 169
er mjög öflugt fyrirtæki með um
20.000 starfsmenn og verk-
smiðjur víða í heiminum, stofnað
árið 1933. Danfoss er stærsta
iðn- og rafeindafyrirtæki Dan-
merkur og leggur mikla áherslu
á rannsóknir og tækninýjungar,"
segir Gísli Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Danfoss hf.
I bás D-20 á Sjávarútvegssýn-
ingunni heldur Danfoss hf. áfram
kynningu á Nessie® vökvakerfi
sínu. Kerfið notar venjulegt vatn
til að knýja færibönd, gíra, krana,
og önnur flutningstæki. Öll vinna
°g viðhald á tækjum verður
þægilegra og umhverfisvænna
þegar notað er vatn í stað olíu
eða rafmagns sem aflgjafa. Raf-
magnsknúin vökvakerfi eru við-
kvæm fyrir vatni og því oft erfitt
að þrífa þau svo vel sé og olíu-
knúin kerfi geta valdið miklu tjóni
ef þau leka, sérstaklega ef það
Mótorar og dælur fyrir Nessle-vatns-
vökvakerfi.
Ýmis búnaður fyrir Nessle-vatnsvökvakerfi.
gerist í matvælaiðnaði. Nessie®
vökvakerfið er gert til að þola allt
vatn sem stenst staðla Evrópu-
sambandsins fyrir drykkjarvatn.
Nessie® getur verið starfrækt þó
svo að frost í umhverfi þess fari
niður fyrir -30°C, þar sem hægt
er að setja á það sérstakan frost-
lög sem samþykktur hefur verið
af matvælaiðnaðinum. Gísli segir
að Nessie® hafi mælst mjög vel
fyrir af þeim framleiðendum er
nota búnaðinn í sín framleiðslu-
kerfi.
Tjakkar fyrir Nessie-vatnsvökvakerfi.
Stjórnlokar fyrir Nessle-vatnsvökvakerfi.
„Kerfið boðar miklar framfarir
á þessu sviði og ætti að höfða til
framleiðenda fiskvinnsluvéla.
Það er stöðugt verið að auka
kröfur um hreinlæti í öllum mat-
vælaiðnaði og svarar Nessie®
þeim kröfurn,1' segir Gísli.
Einnig sýnir Danfoss annað
fjölbreytt úrval eigin framleiðslu,
auk annarra vara frá þekktum
framleiðendum, þ.á.m. frá dælu-
framleiðendunum ITT Flygt,
Lowara, Mono Pumps, rafsuðu-
búnað frá Esab auk Interroll
færibandabúnaðar, svo eitthvað
sé nefnt. Með því sér fyrirtækið
möguleika á að þjóna íslenskum
iðnfyrirtækjum, sem selja vöru
sína og þjónustu til sjávarút-
vegsins. Framtíðarsýn Danfoss
hf. liggur í að vaxa sem beinn
birgi til íslenskra fyrirtækja.
- MÆ 167
ÍSLENSKA SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN - AUKABLAÐ ÆGIS