Ægir - 01.08.1999, Page 183
Fyrir skömmu var tekinn í notkun nýr töivustýrður fræsari hjá
DNG sem er mikilsverður hlekkur í framleiðsluferlinu hjá
fyrírtækinu. Hér standa þeir Helgi Stefánsson (t.h.) og
Guðmundur Haraldsson við fræsarann. Myndir: Jóhann Ólafur
Halldórsson.
Fyrirtaekið hefur því verið á markaðinum í um 20 ár
og er enn að þróast. Það hefur selt um 500 vindur
á ári bæði á innlendan og erlendan markað. DNG
hefur undanfarin tvö ár átt hlut í og tekið þátt í
rekstri á fyrirtæki í Noregi, DNG Norge AS, með
góðum árangri.
Á sýningunni er aðaláhersla lögð á þrjár nýjung-
ar hjá Vaka - DNG. Ein þeirra er Aflanemi. Aflanem-
inn er settur ofan á trollpoka og svo gefur hann
merki um það hvort kominn er fiskur í pokann eða
ekki. Þetta getur sparað tíma og fyrirhöfn við veið-
ar. Þá er einnig kynnt ný beitingarvél fyrir línuveið-
ar á bæði litlum og stórum bátum. Önnur nýjung er
svo nánari útfærsla á LineTec-mæli- og upplýs-
ingakerfinu fyrir línuskip og báta. í þessari nýju út-
færslu hefur beitumælingu verið bætt við. Þá telur
búnaðurinn út króka sem fara í gegnum beitingar-
vélina og mælir hvort á þeim sé beita. Á LineTec-
skjánum uppi í brú birtast þá meðal annars upplýs-
ingar um beitingarhlutfall, fjölda króka, fjölda beitu,
lagningarhraði línu í krókum/mínútu og lagningar-
hraði skips í krókum/mínútu GÞS. Nýjungin DNG
Brú verður kynnt á sýningunni og er þar um að
Björn Böðvarsson sýður saman línuspil í framleiðsludeild Vaka -
DNG á Akureyri.
Sverrir Gestsson við tölvustýrðan rennibekk.
ræða samtengingu á mörgum DNG vindum við
tölvu. DNG Brú byggist á yfirlitsskjámynd sem sýn-
ir staðsetningu hverrar vindu, hvað hún er að gera
og á hvaða dýpi. Frá tölvunni verður hægt að fjar-
stýra vindunni.
Á bás A1 hjá Vaka - DNG er margt til sýnis auk
nýjunganna. Þar má t.d. nefna línuspil, uppstokk-
ara, beituhlið, TrawlTec-átaks- og lengdarmæli fyr-
ir togbáta, SeineTec-átaks- og lengdarmæli fyrir
dragnótarbáta og TRACS-STK-búnað fyrir sjálf-
virkt tilkynningarkerfi báta og skipa.
Brynjar Bragason (t. v.) og Steinar Magnússon í framleiðslusal
fyrir tölvustýrðar færavindur frá DNG.
~-------------------------------------------------------ÆGIR 181
á
iSLENSKA SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN - AUKABLAÐ ÆGIS