Ægir - 01.08.1999, Blaðsíða 190
iSLENSKA SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN - AUKABLAÐ ÆGIS
Róbert Hlöðversson framkvæmdastjórí.
Óháð skoðunarstofa
skilar betri árangri
Nýja skoðunarstofan ehf. er langstærsti aðilinn hér á landi sem
ætlað er að fylgjast með aðstöðu, hreinlæti og innra eftirliti hjá
vinnsluleyfishöfum í sjávarúvegi. Starfsemin byggir á reglu-
bundnum skoðunum á þessum þáttum og tryggir þannig að við-
komandi fyrirtæki uppfylli kröfur laga og reglugerða á þessu
sviði. Tvær skoðunarstofur annast þetta eftirlit í dag og starfa
þær í umboði Fiskistofu. Nýja skoðunarstofan er með yfir 70%
markaðshlutdeild. Framkvæmdastjóri hennar er dr. Róbert
Hlöðversson.
„Hér á landi hefur verið að þróast
mjög gott eftirlitskerfi og er það
einstakt í heiminum að því leyti
að sjálfstætt starfandi stofur
annast þennan þátt en ekki ríkis-
stofnanir. Er óhætt að fullyrða að
kostir þeirrar skipunar mála séu
m.a. þeir að eftirlitið verður mun
ódýrara auk þess sem kostnaður
greiðist af þeim fyrirtækjum sem
njóta þjónustunnar en ekki af al-
menningi í gegnum skattana. Þá
er þetta íslenska kerfi betra að
því leyti að ef til ágreinings kem-
ur er það ekki sami aðili sem
framkvæmir eftirlitið og dæmir í
málinu. Réttarstaða þeirra sem
njóta þjónustunnar verður því
mun betri. Loks má nefna að
sjálfstæður eftirlitsaðili í mark-
aðsumhverfi býr við strangara
aðhald varðandi öguð vinnu-
brögð heldur en ríkisstofnun þar
Nýja skoðunar-
stofan ehf.
sem engin samkeppni ríkir því
standi hann sig ekki í stykkinu
fara viðskiptavinirnar einfaldlega
eitthvað annað.“
Nýja skoðunarstofnan ehf. var
stofnuð árið 1993 af ýmsum
sjálfstætt starfandi útfiytjendum,
Nýja skoðunar-
stofan ehf.
Hestháls 6-8,
110 Reykjavík
Sími: 570 9230
Fax: 570 9002
Netfang: robert@frumherji.is
fiskverkendum og Félagi ís-
lenskra stórkaupmanna. Fjórum
árum síðar keypti Frumherji allt
hlutaféð en stofan er samt rekin
sem sjálfstætt starfandi félag.
Árið 1998 hlaut Nýja skoðunar-
stofan faggildingu sem óháð
skoðunarstofa, fyrst allra skoð-
unarstofa í sjávarútvegi. Aðal-
stöðvar fyrirtækisins eru í
Reykjavík og útibú eru á Húsa-
vík, Stöðvarfirði og ísafirði-
Starfsmenn eru sjö talsins, þar af
fjórir í fullu starfi. En hvers vegna
þetta eftirlit?
„Til þess að geta flutt út sjáv-
arafurðir á Evrópska efnahags-
svæðinu verða íslensk fisk-
vinnslufyrirtæki að uppfylla
ákvæði tilskipana ESB um holl-
ustuhætti við framleiðslu og
markaðssetningu sjávarafurða.
Var ákveðið að fela Fiskistofu,
fámennri stjórnsýslustofnun,
framkvæmd laga á sviði gæða-
stjórnunar fyrir hönd sjávarút-
vegsráðuneytisins en að eftirlitið
með framleiðslufyrirtækjunum
yrði í höndum sjálfstætt starfandi
skoðunarstofa. Meginmarkmið
þessa eftirlitsstarfs er að tryggj3
neytendum á EES-svæðinu
fiskafurðir sem eru heilnæmar og
öruggar til neyslu. Þess má geta
hér að auk þess að annast reglu-
bundið eftirlit í þessu skyni tök-
um við að okkur ófaggildar út-
tektir á hráefni, afurðum og
vinnsluumhverfi samkvæmt
beiðni okkar viðskiptavina. Með
því tryggja þeir sig betur fyrir þy1
að vara, sem ekki uppfyH^
ströngustu kröfur, komist ekki i
hendur kaupenda," sagði Róbert
Hlöðversson að lokum.
188 Mm