Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1969, Side 143
141
Héraðslæknir var hann þó aðeins í tvö ár, því að seint á ári
1916 hvarf hann aftur til Danmerkur og þá til framhaldsnáms
í handlæknisfræði.
Á árunum 1916—1920 stundaði Guðmundur nám og starfaði
á handlæknisdeildum Frederiksbergsspítala i Kaupmannahöfn
og lagði þá einnig stund á kvensjúkdóma og fæðingarfræði.
Árið 1920 hvarf Guðmundur að nýju heim til Islands og hóf
störf í Reykjavík, fyrst við almennar lækningar, en í janúar
1922 byrjaði hann að starfa við læknadeild Háskólans sem
kennari í handlæknisfræði í forföllum Guðmundar Magnússon-
ar prófessors. Hinn 1. janúar 1923 var hann settur dósent í
almennri sjúkdómafræði og réttarlæknisfræði við læknadeild-
ina, og annaðist hann kennslu í þessum fræðum þar til í októ-
ber 1926.
Haustið 1924 tók Guðmundur Thoroddsen við embætti Guð-
mundar Magnússonar sem prófessor í handlæknisfræði og yfir-
setufræði við læknadeild Háskóla Islands. Hann var rektor
Háskólans árin 1926—1927.
Fram til ársins 1931, eða þar til Landspítalinn var fullreist-
ur, hafði Guðmundur starfsaðstöðu á Landakotsspítala, bæði
til kennslu og fyrir sjúklinga sína. Er Landspítalinn tók til
starfa í árslok 1930, var hann skipaður yfirlæknir handlæknis-
deildar og fæðingardeildar Landspítalans og jafnframt forstöðu-
maður Ljósmæðraskóla Islands. Gegndi hann þessum störfum
öllum þar til í júní 1952, að hann lét af störfum sökum aldurs.
Raunar hafði hann fengið lausn frá störfum að eigin ósk 1.
sept. 1951, en féllst á þá ósk læknadeildar að starfa áfram til
vors 1952. Hinn 1. janúar 1949 tók núverandi fæðingardeild
til starfa, og var þá ráðinn til hennar deildarlæknir, sem tók
að sér stjórn hennar svo og Ljósmæðraskólans, en það létti
verulega starf Guðmundar þessi síðustu ár.
Þegar Guðmundur fékk lausn frá störfum við Landspítal-
ann, var hann aðeins 64 ára. Hann var þá í fullu fjöri og í engu
farinn að tapa hæfni sinni sem skurðlæknir. Var það mönnum
nokkurt undrunarefni, að hann skyldi hætta svo fljótt, en
skýring hans var sú, að skurðlækningar væru kröfuhart starf,