Búnaðarrit - 01.10.1917, Blaðsíða 7
BÚNAÐARRIT
245
sandgræðsluna þarna, fyrri en garðurinn er kominn í lag.
Yerkið á að framkvæma undir eftirliti landsstjórnarinnar.
Búfjárrœkt. Til hennar voru helztu fjárveitingar þær,
sem nú skulu taldar:
Nautgripafélög 30 fengu alls 4807 kr. styrk;
var styrkurinn, eins og vant er, 1 kr. 50 au. fyrir hverja
kú fólagsmanna, sem fullnægjandi skýrsla er gefin um.
Páll kennari Zóphóníasson vann í fyrra vetur fyrir bún-
aðarfélagið úr skýrslum nautgripafélaganna, og er nú
árangurinn af starfi hans kominn út í Búnaðarritinu.
í vetur hefir Páll unnið að því fyrir félagið, að rekja
ættir beztu kúnna, og er búist við, að þær ættartölur
verði prentaðar á sínum tíma.
Til eftirlitsmannakenslunnar gengu 600 kr.
Skýrsla um hana er í ársskýrslu Sigurðar Sigurðssonar
búfræðings í Búnaðarritinu. Þar er einnig sagt frá ýmsu
fleiru búfjárræktinni viðkomandi nánara en hér er gert.
Til n a u t g r i p a g i r ð i n g a r í Þykkvabsenum var
veittur 163 kr. styrkur, þriðjungur kostnaðar.
Til stóðhestakaupa var veittur styrkur 2 hrossa-1
ræktarfélögum, Yestur-Eyjafjallahrepps 100 kr. og Gaul-
verjabæjarhrepps 183 kr. 33 au., þriðjungur verðs, með
venjulegum skiiyrðum.
Til g i r ð i n g a f y r i r k y n b ó t a h r o s s var Hrossa-
ræktarfélagi Vestur-Eyjafjallahrepps veittur 300 kr.
styrkur og Eyrarbakkahreppi 350 kr., þriðjungur kost-
naðar, með sömu skilyrðum og vant er.
Til héraðssýningar á hrossum fyrir Árness,
Rangárvalla og V.-Skaftafeils sýslur (í Þjórsártúni) voru
veittar 450 kr., og fyrir Borgarfjarðar og Mýra sýslur
200 kr., gegn þriðjungstillagi annarsstaðar að. — í sumar
er í ráði að hrossasýningar verði haldnar i Ilúnavatns
og Skagafjarðar sýslum.
Til sauðfjárkynbótabúa 5 var veittur 750 kr.
styrkur (á Grímsstöðum á Mýrum, Sveinsstöðum í Húna-