Búnaðarrit - 01.10.1917, Blaðsíða 43
BÚNAÐARRIT
281
Vér teljum ráðlegt, að áður en skýrslueyðublöð eru prentu?r
sé þau borin undir hagstofuna. Hún er sérstaklega vel til þess
sett, að geta gert þau vel úr garði.
Vér leyfum oss nú að senda eyðublaðafrumvörpin tvö, er áður
voru nefnd. Fylgiskjalið endursendum vér.
Aður en vér skiljumst við þetta mál, vildum vér mega benda
á. að ef búnaðarsamböndin, samkvœmt tillögu vorri, verða beðin
að safna grasbýla og smábýla skýrslunum, þá teldum vér æskilegt,
að þau jafnframt legðu það fyrir starfsmenn sina, að veita því
athygli á ferðum sínum, hverjar jarðir mundu vera sérstaklega
vel til þess fallnar, að þeim sé skift eða þar mynduð afbýli
(grasbýli eða smábýli), og sé stjórnarráðinu eða búnaðarfélaginu
gefin skýrsla um það og ástæðum nokkuð lýst. Gott væri, að
þess væri getið í skýrslunni, ef kunnugt er um einhverja jörðr
að eigandi hennar væri fús til að mynda afbýli eða leyfa skift-
ingu jarðar. Búnaðarfélagið mun og fela sínum starfsmönnum
að veita þessu sama eftirtekt, þar sem þeir eiga ferð um“.
Meb bréfi dags. 11. febr. 1916 sendi stjórnarráðib
stjórnarnefndinni prentuð eyðublöð undir skýrslur um
grasbýli og smábýli, gerð eftir tillögum stjórnarnefndar-
innar, og fól henni að annast ineð aðstoð búnaðar-
sambandanna útvegun á skýrslum um þetta efni á eyðu-
blöðin, samkvæmt því, sem lagt hafði verið til í bréfi
hennar 29. okt. 1915.
Stjórnarnefndin sendi svo búnaðarsamböndunum eyðu-
blöðin með bréfi dags. 16. febr. 1916 og bað þau að
láta safna skýrslunum á þann hátt, sem gert var ráð
fyrir í bréfinu til stjórnarráðsins 29. okt. 1915, og var
það bréf látið fylgja prentað, skýrslugerðarmönnunum til
athugunar. Skýrslugerðina í Yestmannaeyjum var sýslu-
nefndin beðin að annast, eftir samráði við stjórnarráðið,
af því að ekki var kunnugt, að starfsmenn Búnaðar-
sambands Suðurlands mundu eiga þangað neitt erindi
annað. Gert var ráð fyrir, að gögnum til skýrslnanna
yrði safnað þá um sumarið, 1916, og skýrslurnar svn
sendar búnaðarfélaginu, þegar þær væru tilbúnar.
Þegar þetta er skrifað, eru til félagsins komnar að eins-