Búnaðarrit - 01.10.1917, Blaðsíða 73
BUNAÐARRIT
311
ástæöuni álítum vér að elcki megi í það horfa. Misréttið er
t. d. ekki meira en það, að hver hreppur, hvort sem liann
er stór eða lítill, kýs einn sýslunel'ndarmann, og er oss ekki
kunnugt, að það valdi neinni óánægju. Er þó sumstaðar
ólíkt meiri fólksfjöldamunur á stærsta og minsta hreppi í
sýslu heldur en á stærsta búnaðarsambandinu, öðru en
Ræktunarfélaginu, og því minsta.
Sumir nefndarmenn kjósa þó heldur, að þessi brej’ting
verði ekki gerð á þessu búnaðarþingi og ekki fyrri en bún-
aðarsamböndin öll hafi fengið færi á að láta í ijós álit sitt
um liana. Er þá sýnt, að hún getur ekki fengið fullnaðar-
samþykki í þetta sinn. Felst því nefndin öll á að bera ekki
upp á þessu búnaðarþingi tillögu um, að það samþykki
Iagabreytingu í þessa átt. En vér ráðum til, að borin verði
undir sljórnarnefndir allra búnaðarsambandanna tillaga sú,
sem hér fer á eftir, um breytingu á lögum Búnaðarfélags
íslands, og verði svo tekin til meðferðar á næsta búnaðar-
þingi, er kunnur er orðinn vilji allra búuaðarsambandanna
um það mál:
»5. gr. verði svo:
Búnaðarþing er skipað 12 fulltrúum, sem kosnir eru til
4 ára. Aðalfundur kýs 4 fulltrúa og 2 til vara, en búnaðar-
samböndin 8 fulltrúa og 8 til vara. Ræktunarfélag Norður-
lands kýs þar nf 2 fulltrúa og 2 varafulltrúa, en hin bún-
aðarsamböndin sex — Austurlands, Suðurlands, Kjalarnes-
þings, Borgarfjarðar, Dala.og Snæfellsness og Veslfjarða —
1 fulltrúa og 1 varafulltrúa hvert. Kosningin fer fram á
aðalfundum sambandanna. Helmingur fulltrúa og vara-
fulllrúa gengur úr annaðhvort ár, og skal þá kjósa menn
i þeirra stað.
Akvæði um stundarsakir:
Fulltrúar þeir og varafulltrúar, sem nú eru, halda sæti
sínu, þar til er kjörtími þeirra er út runninn. Stjórnarnefnd
félagsins ákveður, hver búnaðarsamböndin kjósa fulltrúa
og varafulltrúa í fyrsta sinn, eftir að lagabreyting þessi er
á komin«.