Búnaðarrit - 01.10.1917, Blaðsíða 37
BDNAÐARRIT.
Skýrslur og tillögur
frá stjórnarnefnd Búnaðarfélags íslands,
lagðar fyrir búnaðarþing 1917.
i.
Skýrsla um störf félagsins 1915 og 1916.
Um störf félagsins þessi ár teljum vér að miklu leyti
nægja að vísa til skýrslna þeirra, er gefnar voru á árs-
fundi 1916 og aðalfundi 1917, og annara skýrslna í
Búnaðarritinu, sem þar er vitnað til — auk reikninga
félagsins, sem lagðir verða fyrir búnaðarþingið, ásamt
öllum fylgiskjölum þeirra.
Eins og vant er, hefir svo orðið bæði árin, að sumir
gjaldaliðir hafa farið yfir áætlun, en afgangur orðið af
öðrum. Fyrra árið urðu gjöldin lítið eitt minni en áætlað
var, en seinna árið fóru þau rúmlega 500 kr. fram yfir
áætlun. Yar það einkum gjaldl. 7., til búfjárræktar, sem
fór mikið yfir áætlun bæði árin, eins og hlaut að verða
og fyrirsjáanlegt var, sbr. bréf stjórnarnefndarinnar til
stjórnarráðsins 26. okt. 1914 (Búnaðarrit 1915 bls. 285)
og 18. des. 1916 (prentað hér á eftir). — Seinna árið
fór líka kostnaðurinn við mjólkurskólann mikið fram úr
áætlun, og olli þar mestu um hin gifurlega verðhækkun
á kolum og einnig hitt, að hækka varð dálítið námsstyrk
stúlknanna, eða þann hluta fæðiskostnaðar þeirra, sem
félagið greiðir, vegna verðhækkunar á matvælum öllum,
18*