Búnaðarrit - 01.10.1917, Blaðsíða 90
328
BÚNAÐARRIT
fyrra og í ár bera með sér og sem legið hafa fyrir nefnd-
inni.
Hreppsbúnaðarfélögin (og kaupstaðabúnaðarfélög) ættu
þá að verða frumliðir eða deildir fóðurbirgðafélagsskap-
arins, en landsbúnaðarfélagið, sem hefði alla forgöngu í
málinu, ætti að róa að pví öllum árum, að þau tækju
fóðurbirgðamálið sem allra fyrst á stefnuskrá sína sem
aðalmál; gæti vel á því farið, að það yrði samfléttað annari
starfsemi þeirra. En þar sem enn er svo ástatt, að bún-
aðarfélög eru eigi í nærri öllum lireppum, og allmörg
þeirra því miður nokkuð i lausu lofti, væri máske
fult eins heppilegt, að fóðurbirgðamálið væri sem sér-
stakur og nokkuð sjálfstæður liður í starfsemi félaganna,
og um þetta mál væru félögin í samvinnu við sveitar-
stjórnirnar. Par sem engin búnaðarfélög eru í hreppunum,
væri sjálfsagt að koma þeim á sem allra fyrst. Öðrum
kosti yrðu sveitafélögin sjálf að koma upp hjá sér sér-
stakri l'óðurbirgðafélagsdeild, er svo gengi i allsherjarfé-
lagið, því öllum má það ljóst vera, að ekki einn einasti
hreppur á landinu má vera utan þessa félagsskapar, ef
vel á að fara.
Aðalstarfsmenn fóðurbirgðadeildanna, hvort heldur þær
væru búnaðarfélög eða sveitafélög, verða að sjállsögðu
hinir lögskipuðu forðagæzlumenn, og þar sem búnaðar-
félag er í lireppnum, ætti jafnan einn forðagæzlumaðurinn
að vera formaður búnaðarfélagsins eða annar maður úr
stjórn þess, sem sérstaklega væri til þess slarfa fallinn.
Þegar skýrslur væru fengnar um fóðurbirgðir deildar-
innar að haustinu og nákvæm áætlun gerð um það, hve
mikið muni á skorta, að nægilcgt fóður sé fyrir hendi
fram úr, skal það tilkynt þeim, sem fóðrið útvegar, og
teljum vér lieppilegast og tryggilegast, að öll fóðurverzlunin
fari fram með fullu samvinnusniði, bændur eigi hana
sjálfir, ábyrgist hana og standi sjálfir straum af henni. Par
sem góð kaupfélög eru, geta þau vilanlega annast öll fóð-
urinnkaup. Ró gæti komið til mála, að landsstjórnin ann-
aðist útvegun vörunnar, að minsta kosti væri það að lík-
indum tryggilegast að svo stöddu.
Annars telur nefndin ástæðulaust að fara frekara út í
þetta mál, en treystir stjórn sinni til að skipa scm bezt