Búnaðarrit - 01.10.1917, Blaðsíða 84
322
BÚNAÐARRIT
a ð greiða fyrir útbreiðslu peirra verkfæra, sem vel reyn-
ast, og kenna mönnum að nota þau, og nyti félagið til
þess aðstoðar búnaðarsambandanna.
Til þess að veruleg framkvæmd verði á þessum atriðum,
er óhjákvæmilegt að auka þá starfskrafta, sem félagið nú
ræður yfir. Verður því tillaga nefndarinnar:
að fenginn verði, svo fljótt sem ástæður leyfa, sérstakur
maður í þjónustu félagsins til þess að liafa þennan
starfa á hendi, sem heflr þekkingu og reynslu i jarð-
rækt, ber skyn á verkfæri og liefir verklega æfingu i
jarðræktarvinnu liér á landi.
En jafnframt vill nefndin benda á eitt, sem verða mætti
að nokkru liði í þessu máli, án verulegs sérstaks fjárfram-
lags, og það er, að stjórn félagsins fylgi framvegis þeirri
reglu, að gera liverjum þeim, sem félagið veitir utanfarar-
styrk, að skyldu að hafa vakandi auga á því, að kynna sér
eftir föngum verkfæri og verkfæranotkun, þar sem þeir
dvelja eða fara um, og gefa félagsstjórninni upplýsingu um
það, sem þeim þykir einhvers um vert af þessu tagi.
T2. Frá búfjárræktarneí'iid. Uni styrk til sauðfjárkynbótalnis.
Nefndin hefir fengið til athugunar og umsagnar erindi
hr. Jóns H. Þorbergssonar fjárræktarmanns um styrk til
að stofna slíkt bú á Bessastöðum í Gullbringusýslu. Jafn-
framt liefir nefndin átt kost á að ræða þetta mál við hann
(en að öðru leyti átti hann eigi þátt í meðferð þess í nefndinni).
Hugmynd hans er að kaupa úrvalskindur frá þeim stöð-
um á landinu, þar sem liann álítur að bezta stofna sé að
fá, gera tilraunir með þá og fullkomna eftirsóknarverða
eiginleika þeirra, koma i þá kynfestu, til að geta síðan selt
hrúta til kynbóta. Jafnframt vill liann geta gefið ungum
mönnum kost á að læra góða fjárrækt. Og verði leyiður
innflutningur erlends sauðfjár, vill J. II. P. gera tilraunir
með blöndun af því til sláturlambaframleiðslu, og einníg
hreinrækta það.
Nefndin lítur svo á, að sauðfjárræktarbú á þessum stað
mundi naumast geta liaft fulla þýðing fyrir alt landið.
Pykja líkur til að þess nyti einkum sunnanlands og vestan.