Hlín - 01.01.1917, Page 6
4
Hlín
Og heimasætan heyra skal það mál,
sem hrífur unga, starfaþyrsta sál,
því Hlín vill kenna henni gull að spinna
og heimilinu yl og skraut að vinna.
Og Hlín kann sögur um þau auðnulönd,
sem enn ei hefir snortið starfsins hönd.
Htin vill þau nema og merkja andans eldi
og í þeim stofna góðra lista veldi.
Svo far þú, Hlín, í friði um dal og strönd,
þjer fylgir von og trygð við heimalönd
og trú á framtíð okkar svölu sveita,
ef saman hendur starfa og vonir leita.
Hulda.
Sambandsfjelag norðlenskra kvenna.
Veturinn 1913—1914 áttu nokkrar konur á Norður-
landi fundi með sjer og brjefaviðskifti um fjelagsstofnun
fyrir fjórðunginn allan. Þær töldu líklegt, að konum úr
hinum ýmsu hjeruðum norðanlands ljeki hugur á að
kynnast nokkuð nánar og starfa eitthvað saman, ef þess
væri kostur.
Kvenfjelög voru að vísu mörg starfandi á þessu svæði,
en voru að miklu leyti einangruð"x)g almenningi út í frá
lítt kunnug stefna þeirra hvers um sig og starfsemi.