Hlín - 01.01.1917, Qupperneq 9
Hlin
7
því, að Sambandinu væri þörf á að eignast málgagn, ef
það ætti að ná þeim tilgangi sínum að efla samvinnu
kvenna.
Steí'na Sambandsins og áhugamál þurfa að koma ljós-
lega fram, ekki einungis í ræðu heldur og í riti, sem
nær til langt um fleiri kvenna en þeirra, sein fundina
sækja, ella er hætt við, að áhrifin verði hverfandi.
Á Sauðárkróksfundinum 1916 var samþykt svohljóð-
andi tillaga 1 málinu:
„Fundurinn samþykkii', að komið verði á lót tímariti
fyrir konur. Aðsetur tímaritsins sje á Akureyri. Fund-
urinn væntir styrks kvenna innan Sambandsins og utan
við útgáfu tímaritsins, á þann hátt, að þær safni kaup-
endum, og felur fundurinn stjórn Sambandsins fram-
kvæmdir í málinu, ef næg trygging fæst fyrir því, að rit-
inu sje fjárhagslega borgið.“
Áskrifendasöfnunin, er gengið hefur dável en seint,
héfur tafið fyrir framkvæmdum í málinu, sömuleiðis sam-
vinnuumleitun við Bandalag reykvískra kvenna um út-
gáfu tímaritsins. Treystust þær ekki, að þessu sinni, að
taka þátt í samvinnu á þennan hátt.
Eins og ástatt er nú, dýrtíð og erfiðleikar ýmsir, telur
stjórnin ráðlegt að gefa 1 þetta skifti aðeins út Ársrit,
til þess að daufheyrast ekki alveg við kröfum Sambands-
fundanna um útgáfu rits, en hætta sjer á hinn bóginn
ekki út í neinar ófærur.
Vonum vjer, að norðlenskar konur láti sjcr þetta lynda
að svo stöddu.