Hlín - 01.01.1917, Síða 10
X
Hlin
Lög SambandsfjUags norðlenskra kvenna.
Nafn.
Fjelagið lieitir Sambandsfjelag norðlenskra kvenna.
Fjelagssvæðið.
Fjelagssvæði S. N. K. nær yíir Ffúnavatns-, Skagafjarð-
ar-, Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslur.
Tilgangur.
Tilgangur fjelagsskaparins er að efla saniúð og sam-
vinnu meðal kvenna á fjelagssvæðinu.
Tilgangi sínum vill S. N. K. ná:
1. ) með því að stuðla að stofnun einstakra kvenfjelaga,
sýslu- og bæjarsambandsfjelaga,
2. ) með fundahöldum.
Sambandsdeildir.
Sambandsfjelagið myndast af einstökum fjelögum og
fjelagasamböndum, þar sem konur eiga sæti i stjÓrn.
Stjórn.
Stjórnina skipa 3 konur, formaður, gjaldkeri og ritari.
3 konur skulu og kosnar til vara.
Formaður Itoðar til funda og stýrir þeim, hann er og
málsvari S. N. K. ut á við. Þær 3 konur er skipa stjórn,
má ekki kjósa sent fulltrúa. Þær konur einar má kjósa í
stjórn, er bústað eiga nærri símastöðvum.
Stjórnin hefur á hendi framkvæmdir fyrir S. N. K. milli
funda. Á hverjum ársfundi gengur 1 kona úr stjórninni,
og'skal um leið önnur kosin í staðinn.
Fulltrúaráð.
Fjelög þau, er gengið hafa í S. N. K., kjósa 2 fulltrúa
livert, er sæti eiga á ársfundum.