Hlín - 01.01.1917, Page 14
12
Hlin
4. Uppeldismdl.
Framsögu hafði: Guðfinna Antonsdóttir, Akureyri.
Umræður urðu taisverðar um málið, en engin tillaga
samþykt.
Áður fundi var slitið þennan dag, skýrði Hólmfríður
Pjetursdóttir, Gautlöndum, eftir ósk forstöðunefndar
fundarins, frá stofnun og starfsemi kvenfjelaga-sambands
Suður-Þingeyjarsýslu.
Þennan dag skoðuðu fundarkonur 3 fegurstu blónr-
og trjágarða Akureyrar.
5. Heimilisiðnaður og sýningar.
Framsögu hafði: Vjedís Jónsdóttir, Litluströnd.
Tillaga kom engin l'ram í þessu máli, en kvenfjelög-
um og konum yfirleitt var falið málið til umhugsunar
og heppilegra framkvæmda. Þingeyskar konur kváðu
sveitasýningar í hjeraðinu nyrðra hafa aukið áhuga fyrir
heimilisiðnaðinum hin síðari ár.
Þennan dag skoðuðu fundarkonur klæðaverksmiðjuna
„Gefjun" og útsölu hennar á Oddeyri.
G. Hjúahald.
Framsögu hafði: Jóninna Sigurðardóttir, Akureyri.
Svoliljóðandi tillaga var samþykt í málinu:
„Fundurinn vill, að góð samvinna eflist meðal hús-
bænda og hjúa og skorar á allar stjettir að vinna að
því. Beinir því urn leið að foreldrum öllum í sveitum og
kaupstöðum að venja börn sín á hlýðni og starfseini í
hvívetna.“
7. Sambandsfjelagsskapur norðlenskra kvenna.
Framsögu liafði: Halldóra Bjarnadóttir, Akureyri.
Svohljóðándi tillögur voru samþyktar í málinu:
I. „Kvennafundurinn á Akureyri 1914 skorar á norð-
lenskar konur að mynda sambandsfjelag sín á milli, til
þess að vinna að sameiginlegum framfaramálum sínum.