Hlín - 01.01.1917, Page 18

Hlín - 01.01.1917, Page 18
16 Hlín Alheimsfjelag kvenna, sem stendnr yfir öllurn þessum fjelagsskap, er nú um 20 ára gamalt og á rót sína að rekja til Ameríku. Nú eru 20—30 ríki hins mentaða heims í sambandi þessu. Fundir eru haldnir 5. hvert ár til skiftis í löndunum. Hvert landsfjelag greiðir 20 sterlingspund (^360 kr.) 5. hvert ár í fjelagssjóðinn. Hvert land má senda formann sinn og 2 fulltrúa á fundi þessa. Hafa öll lönd, livort sem þau eru stór eða lítil, sömu rjettindi. Stjórnina skipa 5 konur. Landssamböndin kosta fulltrúa sína og formenn til fundanna, en alheimsfjelagið sína stjórn. Heiðursfjelagar. Lönd þau, er ekki eru gengin í sam- bandið, mega senda 1 fulltrúa á fundi þessa, til þess að kynnast fjelagsskapnum (heiðursfjelagar). Þessir fulltrúar hafa ekki atkvæðisrjett. Fjelagsskapur þessi allur með undir- og yfirbyggingu er aðdáunarverður, að því leyti fyrst og fremst, að hann stjórnast af kærleika til þeirra, sem á einhvern hátt eru ofurliði bornir í mannfjelaginu, og að hann á hinn bóg- inn er bygður á mikilli þekkingu á högum kvenna. Einkunnarorð fjelagsins í heild sinni eru þessi orð Krists: „Það sem þjer viljið að mennirnir gjöri yður, það skuluð þjer og þeim gjöra.“ Það væri einkar æskilegt, að íslenskar konur vildu að einliverju leyti taka sjer þenna fjelagsskap til fyrirmyndar. Er þær nú hafa fengið fult jafnrjetti við karlmenn, ætti vel við að koma fjelagsmálum sínum í fast og skipulegt form. Einangrunin dregur þrótt og þol úr svo mörgum fjelagsskap. Norðlenskar konur hafa, sem kunnugt er, efnt til sam- bands.. Þó það sje enn stutt á veg komið, er það spor í áttina til kynningar. Það er byrjunin. Islenskar konur eiga eftir að sameina kraftana. Takist það, má fram- kvæma eitthvað þarft, sem nú er ógert. H. B.

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.