Hlín - 01.01.1917, Qupperneq 19
Hlín
17
Sambandsmál.
Vjer viljum nú gera þau mál nokkuð að umtalsefni,
er S. N. K. hefur hal't á stefnuskrá sinni frá byrjun.
Heimilisiðnaður.
Stofnun og starfsemi „Heimilisiðnaðarfjel. Norðurlands".
Nú á síðustu árum hefur mönnum orðið það fyllilega
ljóst, að íslenskur heimilisiðnaður er orðinn í mikilli nið-
urlægingu og í sumum hjeruðum að mestu gleymdur.
Þykir mörgum manni þetta hið mesta tjón fyrir landið.
Með aðstoð nokkurra heimilisiðnaðarvina var stofnað
fjelag á Akureyri 19. apríl 1915 til eflingar íslenskum
heimilisiðnaði. Fjelagið hlaut nafnið „Heimilisðnaðarfje-
lag Norðurlands“. Stofnendur voru um 30. Fjelagsmenn
nú 78 til og frá á Norðurlandi.
Sá er tilgangur fjelagsins.að endurreisa og útbreiða ís-
lenskan heimilisiðnað, og að útvega mönnum markað fyr-
ir vörur sínar, bæði hjer og erlendis.
I september sama ár og ljelagið var stolnað var kom-
ið á fót útsölu á heimilisiðnaðarmunum á Akureyri. —
Hefur það gefist vel og salan stöðugt aukist. Eftirspurn-
in jafnan verið meiri en framleiðslan. Vörur, sem seldar
eru í útsölunni, og 1 jelagið hefur ekki sjeð sjer fært að
kaupa, eru teknar gegn 10% sölulaunum.
Námskeið í trjesmíði, körfugerð og skósmíði hafa ver-
ið lialdin á Akureyri tvo undanfarna vetur, og hala þau
verið vel sótt. í ráði er nú, að fjelagið hali námsskeið í
vefnaði í vetur með tilstyrk konu þeirrar, er fjelagið hef-
ur styrkt til nárris erlendis.
Efni, sem brúkað héfur verið við námsskeiðið, hefur
fjelagið útvegað nemendunum. — Ein af hugsjónum fje-
lagsins er að útvega mönnum áhöld og efni, bæði inn-
2