Hlín - 01.01.1917, Page 20
18
Hlin
lent og útlent, til að vinna úr, og sjeu jafnan byrgðir af
því í útsölunni, þetta hefur enn ekki getað orðið vegna
ýmsra erfiðleika.
Ennfremur vill fjelagið koma því til leiðar, að heimil-
isiðnaðardeildir myndist til og frá á Norðurlandi, er
standi í sambandi við fjelagið á Akureyri.
Hugsjónir fjelagsins eru margar, en aðalhugsjón þess
er að endurreisa íslenska list og hagleik karla og kvenna,
kenna mönnum iðjusemi og auka virðingu þeirra fyrir
því sem þjóðlegt er og fagurt. Jeg hef heyrt marga
segja, að íslenska þjóðin sje listfeng, en það hrós álít
jeg að forfeður vorir hefðu fremur átt en vjer.
Komi maður á forngripasafnið í Reykjavík, gefst manni
kostur á að sjá marga muni listilega unna, t. d. saum-
aðar og glitofnar ábreiður, baldýraða og blómstursaum-
aða skautbúninga, útskornar hillur, öskjur, skápa og
margt fleira, sem hjer yrði of langt upp að telja.
Nú er að renna upp ný öld fyrir heimiilsiðnaðinn, og
von mín er sú, að gömlu vefstólarnir ogrokkarnir, sem bú-
ið er að setja út í liorn hjá öðru skrani, verði bráðlega
teknir fram aftur og hafðir í meiri lieiðri en nokkru sinni
áður.
Akureyri.
E. F.
Seldir munir á heimilisiðnaðarútsölunni á Akureyri
frá 1. januar 1917 til 30. sept. 1917.
271 pör sokkar.
178 — vetlingar.
45 hálstreflar.
55 hyrnur.
29 skyrtur.
4 pör smokkar.
2 peysusvuntur.
2 kvenbúningar.
fi kvenpeysur.
74 pör íslenskir skór.
14 langsjöl.
Svuntudúkur 10.00.
2 pilsefni.
3 kventreyjur.
8 peysutreflar, ísaumaðir.
3 telpuhattar.