Hlín - 01.01.1917, Page 21
Hlin
19
2 kvenkjólar.
2 herðaklútar.
3 upphlutsborðar.
9 pör leistar.
Merkistafir fyrir 34.70.
13 barna-og telpukjólar.
16 drengja- og telpuhúfur.
1 kvenpils.
10 millipils.
Alls selt fyrir kr. 2.435.
5 sessur og sessuborð.
3 prjónavesti.
Vaðmál fyrir 31.00.
4 pör barna prjónabuxur.
1 rúmábreiða 150.00.
Ýmislegt: spænir, askar,
öskjur, beinheklunálar,
bastvinna, burstar, sópar,
fingurbjargir, 140.00.
Joh. Chirstensen.
Hvað á að láta á heimilisiðnaðarútsölu?
Þannig spyrja margir, og er eðlilegt að menn spyrji
svo, því íslenskur heimilisiðnaður liefir til skamms tíma
ekki verið verslunarvara á Norðurlandi, að fráskildum
smábandstóskapnum.
Allir munu hafa veitt því eftirtekt, að hin síðari árin
hafa flestar verslanir flutt inn meira og minna af útlend-
um ullarvarningi: nærfatnaði karla, kvenna og barna,
klútum, hyrnum, vestum, peysum, húfum, sokkum,
smokkum, vetlingum, barnakjólum og treflum, en mjög
óvíða hefir sjest íslenskur iðnaður af þessum tegundum í
búðum, nema smábandstóskapurinn, sem fáir Islending-
ar vilja líta við. — Ef íslenskir iðnaðarmunir hefðu verið
á boðstólum jafnframt hinum útlenda varningi, mundi
margur liafa kosið þ;i heldur, vegna þess hve hlýir og
haldgóðir þeir eru, þó þeir sjeu dýrari í svipinn.
Þessir hlutir allir, sem hjer eru taldir, þurfa því jafnan
að vera til á heimilisiðnaðarútsölu. Þar að auki þarf Jrar
að vera nokkuð af íslenskum dúkum t. d.: nærfatavað-
máli, svuntu- og millipilsdúkum, ábreiðu- og gólfdúka-
efni, ennfremur skotthúfur, illeppar og snjósokkar.
Af ullariðnaði ættum við íslendingar ekki að þurfa að
kaupa neitt frá útlöndum, heldur Jrvert á móti miðla öðr-
um þjóðum af gnægð okkar.
9*