Hlín - 01.01.1917, Side 38
Fyrsta íjelagið er hjúkrunarfjelagið „Hlíf“ á Akureyri,
stofnað 4. febrúar 1907 af aðeins 8 konum. Þykir hlýða
að fara hjer nokkrum orðum um fjelagið og starfsemi
þess, því flest hafa hin önnur hjúkrunarfjelög hagað starfi
sínu eitthvað líkt.
Það, sem aðallega vakti lyrir stofnendunum, var að
fjelagið hjálpaði fátækara fólki með hjúkrun í heimahús-
um, er sjúkdóm bæri að höndum, því aðhlynningu er
oft mjiig ábótavant undir þeim kringumstæðum, bæði
vegna þekkingarleysis og tíma- og efnaskorts.
Fjelagið rjeð því þegar á 2. ári fasta hjúkrunarkonu.
Það geldur henni kaupið, en þar sem hún hjúkrar hjá
fátæku fólki, gerir ljelagið það endurgjaldslaust, þeir sem
hafa nokkur efni borga eftir ástæðum. En brátt kom það
í ljós, að ein hjúkrunarkona fullnægði ekki, og rjeðist
því fjelagið í að taka aðra á síðastliðnu vori, hafa þær
báðar yfrið nóg að starfa. Auk þess sem hjúkrunarkon-
urnar veita þeim sjúku þjónustu sína, annast þær heim-
ilisverkin, að svo miklu leyti, sem þær geta, og þar sem
þess þarf’ við. Sjerstaka umönnun hefur fjelagið veitt fá-
tækum sængurkonum, sem auk hjálpar og hjúkrunar hafa
fengið mjólk og mat frá fjelaginu, og oft fatnað að láni
eða gjöf.
Ein grein starfsemi fjelagsins er aðhlynningin að fá-
tækum einstæðingsgamalmennum. Vitjar hjúkrunarkon-
an iðulega um þau og gerir vistlegt í kringum þau, ef þau
eru þess ekki megnug sjálf, en fjelagið gefur þeim mjólk
og mat að einhverju leyti, eins og svo mörgum öðrum
fátækum, veikluðum og veikum.
Fjelagið hefur ráð á vökukonu, er það lánar til sjúkl-
inga, er þörf gerist.
Fjelagið á talsvert af nauðsynlegum hjúkrunartækjum.
Á jólum hefur fjelagið sent öllum sjúklingum á sjúkra-
húsi hjeraðsins einhverja gjöf, og fyrir tilhlutun þess, er
þar haldin guðsþjónusta um hátfðirnar.
Það hefur verið blessun í búi hjá fjelaginti, svo margt