Hlín - 01.01.1917, Síða 42
40
Hlin
og nemendur oft saman við ljetta handavinnu. Þá las ein
hátt fyrir alla til fróðleiks og skemtunar.
Kennari við skólann var, auk undirritaðrar, ungfrú
Guðrún Jóhannesdóttir frá Auðunnarstöðum í Víðidal.
Lækjanióti 3. sept. 1917.
Jónina S. Lindal.
Húsmceðraskólinn á Isafirði.
Skólinn er stofnaður af kvenljelaginu ,,Ósk“ á ísáfirði,
eða rjettara sagt af formanni þess, frú Cam. Torfason.
Hann tók til starfa 1. oki. 1912.
Allir nemendur hal'a lieimavist, livort heldur þeir eru
búsettir utan kaupstaðarins eða í lionum,
Skólinn rúmar 12 nemendur.
Skólatíminn er 8 mánúðir, frá 16. sept. til 14. maí.
Tímabilinu er skift 2 námsskeið, er starfa 4 mánuði
hvort.
Kenslan er bæði verkleg og bókleg.
Verklegt er kent:
Matreiðsla, brauðgerð, meðferð á slátri, niðursuða,
þvottur og meðíerð hans, ræsting herbergja og ljerefta-
saumur.
lfóklegt er kent:
Næringarefnafræði, hjúkrunarfræði, lteilsufræði, bú-
reikningar, efnablöndun fæðunnar og garðyrkja.
Hver nemandi hefur greitt 86 kr. um mánuðinn lyrir
húsnæði, fæði, kenslu og þvott.
Skólinn hefur verið styrktur af opinberu I je, bæði úr
landssjóði og sýslusjóðum, einnig hefur hann notið
styrks úr bæjarsjóði Ísaíjarðar. Tekjur hans hafa þannig
orðið um 1600 kr. á ári undanfarandi ár.
Skólinn leigir hús. Kenslukraftar hafa verið hinir sömu
við skólann frá byjrun. Forstöðukona undirrituð, og 2
tímakenslukonur, frk. Guðrún Tómasdóttir, er kent hef-