Hlín - 01.01.1917, Page 49

Hlín - 01.01.1917, Page 49
Hliu 47 slímhimnubólgu í maga og görnum, sem orsakast aí ákveðnum bakteríum. Venjulega er kvefið takmarkað í görnunum og lýsir sjer með niðurgangi, en stundum er einnig bólga í magaslímhúðinni og fylgir þá einnig upp- sala. Bakteríurnar, sem valda iðrakvefi, berast til heil- brigðra úr því sem gengur upp og niður af sjúkling- unum. Ef ekki er gætt rnikils þrifnaðar, er hætt við að bakteríurnar berist í mat og drykk, einkum mjólk og vatni, og sýkjast menn þá af að neyta þeirra hluta. Þeg- ar iðiakvef gengur á heimili, er öllum gestum, senr að garði koma, hætt við sýkingu — bæði við að snerta heim- ilismenn og ekki síður við að neyta þar matar og diykkj- ar. Ráðin gegn sýkingu er því svipuð og við venjulegu kvefi: varast þau heimili, þar sem iðrakvef gengur, og heimilisfeður þar eiga að gera gestum aðvart um að sú sótt sje að ganga; neyta þar ekki neins eða þá aðeins soðinnar fæðu — og ekki að gleynra því að kossar og handabönd eiga mikinn þátt í útbreiðslu þessarar sóttar eins og fleiri annara. Stgr. Matthiasson. Fjósið. Með því að hin heiðraða ritstjórn Ársritsins ,,Hlín“ hefur farið þess á leit við mig, að jeg ritaði nokkur orð um fjósið, þá ætla jeg hjer að sýna lit á því; þó mega menn ekki búast við neinum nýmælum, því „ekkert er nýtt unlir sólinni", segir máltækið, og mun mönnum sýnast það satt og rjett, að minsta kosti þegar um fjós- ið er að ræða. * # #

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.