Hlín - 01.01.1917, Síða 66
04
Hlin
lendingar verði dýrðlegir með útlendri þjóð, takmarkið
er að íslenska þjóðin verði stórþjóð á íslandi.
Kristbjörg Jónatansdóttir.
Frá Alþingi 1917.
Málefni, sem konur varða.
Lög um stofnun húsmccðraskóla á Norðurlandi.
1. gr.
Húsmæðraskóla skal stofna í grend við Akureyri. Skal
hann veita konum þá kunnáttu, sent nauðsynleg er hverri
húsmóður og gerir hana færa um að gegna vel stöðu sinni.
Skal búskapur rekinn í sambandi við skólann.
2. gr.
Skólinn skal rúma 40 heimavistir og kenslustofur fyrir
alt að 50 nemendur, auk íbúðar forstöðukonu og þjón-
ustufólks, svo og geymslu fyrir matvæli, eldsnevti o. fl.
Hann skal bygður úr steinsteypu eftir uppdrætti.er stjórn-
arráðið samþykkir, og útbúinn með nýtísku tækjum til
matreiðslu, hitunar, lýsingar og ræstunar.
3. gr.
Skólanum stýrir forstöðukona, er tekið hefur próf í
þeim kenslugreinum, er 4. gr. ákveður. Hún ræður kenn-
ara með samþykki skólanefndar, er stjórnarráðið skipar.
4. gr.
Námsgrei nar eru:
A. Verklegar:
Matreiðsla allskonar, og sje sjerstök áhersla lögð á