Hlín - 01.01.1917, Síða 68
Hlin
66
til laga um endurbætur á gildandi löggjöf um stofnun og
slit hjúskapar og afstöðu foreldra til barna.
Lög um breytingu ú tilskipun 30. apríl 1824 ug játækra-
lögum nr. 44, 10. nóv. 1905.
Samkvæmt lögum þessum eru eldri lagaákvæði um,
að persónur megi ekki gifta sig, er standa í ógoldinni
sveitarskuld, úr lögum numin.
Þingsályktun um endurbœtur á gildandi löggjöf um með-
ferð á fje ómyndugra.
Efri deild Alþingis ályktar að skora á landsstjórnina
að undirbúa og leggja fyrir Alþingi, svo fljótt senr unt
er, frumvarp til laga um endurbætur á gildandi löggjöf
um meðferð á fje ómyndugra.
Þingsályktun urn breyting á fátcekralögunum frá 10. nóv.
1905.
Neðri deild Alþingis ályktar að skora á landsstjórnina
að undirbúa, eða láta undirbúa, frumvarp til nýrra fá-
tækralaga, er bæti úr göllum þeim, sem eru á núgild-
andi fátækralögum, einkum er eftirgreind atriði snertir:
1. Að styrkur sá, er sveitar- og bæjarsjóðir veita mönn-
um vegna ómegðar, sjúkdóma, slysa eða elli, verði
eigi talinn sveitarstyrkur, svo að þeir megi halda
öllum sínum borgaralegu rjettindum, í það minsta
um nokkurra ára skeið.
2. Að þurfamannaflutningi verði hagað svo, að mann-
úðlegri verði en áður.
3. Að frestur sá, er 66. gr. fátækralaganna ræðir um,
verði lengdur,