Hlín - 01.01.1917, Blaðsíða 71
Hlin
69
svo þær verði ekki fyrir tjóni af einstæðingsskap og um-
hirðuleysi. Sennilega mundi mörg móðirin láta dótturina
frá sjer með ijúfara geði, ef hún hefði vissu fyrir, að
hennar biði í höfuðstaðnum gott heimili, ábyggilegt í alla
staði, andlega og líkamlega heilbrigt.
Allir hinir stærri bæir Norðurlanda eiga fleiri og færri
lteimili fyrir aðkomustúlkur með ýmsu fyrirkomulagi.
Komast þar jafnan að færri en vilja. Þar þykir tryggilegt
að búa, því þar ríkir regla og hreinlæti, þar er ódýrt að
búa, því heimilið er ekki gróðafyrirtæki, heldur er aðeins
gert ráð fyrir, að það beri sig. Sum eru heimili þessi
stofnsett með hlutabrjefum kvenna (nokkur með aðeins
25 kr. hlutum), sumum hafa jafnan gefist dánar- eða
minningargjafir. Flest hafa þau bryjað í smáum stíl, leigt
liús, en ekki keypt, en smávaxið fiskur um hrygg.
Ölíum ber saman um, að heimili þessi hafi orðið mörg-
um einstæðing til blessunar.
Islenskar konur geta hæglega, el Jrær eru samtaka,
komið á fót þanni glöguðu hæli fyrir áðkomuátúlkur í
Reykjavík. Til þess ætti að stofna með samlögum frá
öllu landinu, með því ekki er sá hreppur til, er ekki á
hjer hlut að máli.
Reykvískar konur hafa með heiðri og sóma gengist
fyrir fjársöfnun til landsspítalans, sem landsmenn allir
eiga að njóta góð's af. Þessu máli ættu konur utan Reykja-
víkur að hrinda áleiðis, þeim er það skyldast, en mikið
þyrftum við á hjálp og aðstoðar systra okkar í höfuð-
staðnum að halda við lramkvæmdir þess máls, treystum
vjer þeim og hið besta til þeirra hluta, sjerstaklega þeim,
sem aðstöðú sinnar vegna eiga mikið saman við aðkomu-
stúlkur að sælda, svo sem forstöðukonur skólanna og
kristilegt fjelag ungra kvenna o. f].
Heimili þetta, er ætti að geta hýst og fætt 20—30
stúlkur þegar frá byrjun, þyrfti að standa í sambandi
við góð heimili, er mælandi væri með til verustaðar, er
heimilið væri fult, ennfremur mundu þar og fást munn-