Hlín - 01.01.1919, Blaðsíða 48
48
Hlin
Staten lærerhöjskole, Kanpmannahöfn (hefur sjerdeild
fyrir kenslukonur við skólaeldhús).
í Svíþjóð:
Fredrika liremer-forbundets landhusholdningsskole,
Rimforsa .Östergötland.
Fagskolen i huslig ökonomi, Uppsala ("stærsti skóli á
þessu sviði á Norðurlöndum).
Skólarnir senda ,,Plan“ ókeypis, ef óskað er. Fæst þar
góð greinargerð um stefnu þeirra og störf.
Skólarnir veita oft útlendingum leyfi til að taka þátt í
námi skemri eða lengri tíma, þó skólinn sje fullskipaður,
eða taki ekki móti útlendingum (Hospiterende elever).
Eigi nú ferðakonan unga engan að, er taki á móti
henni í ókunna landinu, þá er gott að, vita, að til er
öflugar fjelagsskapur, er á sjer deildir í öllum borgum
og fjölmörgum bæjum, og sem liefur það aðalmarkmið,
að leiðbeina og hjálþa þeim ungu, nfl. Kristilegt fjelag
ungra kvenna. 'Faka sjálfboðaliðar frá því fjelagi fúslega
móti vegfarendum og leiðbeina þeim á ýmsan hátt, taka
á móti þeim á bryggjum og járnbrautarstöðvum, útvega
þeint tryggilegan verustað o. s. frv.
Þá eiga íslensku stúlkurnar góðvinum að mæta, þar
sem þær eru Olafía Jóhannsdóttir, Langgaden 37, Krist-
janíu, og Ingibjörg Ólafsson ýU. K. K. F. reisesekretær,
Aarhus, Danmörku). Leiðbeina þær fúslega mörgum land-
anum árlega. Þá hefur Dansk-islandsk Samfund, Nyhavn
22 III, Kaupmannahöfn, vinsamlega boðist til vera Is-
lendingum hjálplegt á ýmsan hátt, og hefur þegar rjett
mörgum einstæðing ltjálparhönd.
Mig langar til að enda þessar línur með dálítilli áminn-
ingu til ungu stúlknanna íslensku sem sigla.
Minnist þess, að eftir framkomu ykkar verður ísland
dæmt af útlendingum. En við óskum öll svo innilega, að
okkar ástkæra land verði ekki fyrir lasti.
Halldóra Bjarriadót.tir.