Hlín - 01.01.1919, Blaðsíða 28
28
Hlin
Heimilisiðnaðarfjelag Norðurlands liafði árinu áður
ráðgert, að hlutast til um árlegar sýningar á iðnaði norð-
anlands, og búist við að styðja þær með nokkrum fjár-
styrk, þá var á Húsavík nýstofnað iðnfjelag, og svo átt-
um við Samband þingeyskra kvenfjelaga að bakhjarli,
svo ekkert var líklegra, en að þarna yrði margt fallegt
að sjá. Það brást heldur ekki. Sýningin tókst mjög vel.
Hún var í 3 stofum barnaskólans og naut sín vel með
rúm og tilhögun alla.
Sýningarmunirnir voru á 5. hundrað, aðallega úr Suður-
Þingeyjarsýslu, en þátttaka var þó talsverð úr öllum sýsl-
um Norðlendingafgjórðungs. í Suður-Þingeyjarsýslu voru
haldnar 5 smásýningar á undan Húsavíkursýningunni og
• úrvalið sent þangað.
I’að bar býsna mikið á vefnaði og útskurði á sýningu
þessari, eins og á sýningunni miklu í Kristjaníu 1914. Þar
voru þær iðngreinar yfirgnæfandi.
Islendingar geta enn orðið snillingar í þessum greinum.
Framför er auðsæ, eftir því sem fleiri sýningar eru haldn-
ar. Ullarjavi var þarna af fleiri tegundum t. d., og gaf
hann ekki eltir útlendum java, jurtalitað band bæði í
vefnaði og ísaum og fleiri nýbreytni. A næstu sýningar
ættu að koma einföld og hentug húsgögn með íslenskri
gerð, fóðruð íslenskum dúk.
Vonandi helst hún nú framvegis sú góða regla, sem
búið er að taka upp, að hafa iðnsýningu þar sem sam-
bandsfundur er haldinn. Þannig yrði sýning viss árlega,
5. hvert ár í hverri sýslu. Þyrfli þá cnginn að kvarta um
ónógan undirbúningstíma. Líklega væri hentugast að hafa
sýninguna aðeins fyrir sýsluna, en fjórðungssýningu á 10
ára l'resti eða svo.*
Kona.
* Vjer höfum hinar bestu vonir um, að iðn- og kvenfjelög Skag-
firðinga sjái sjer fært að efna til sýningar á Sauðárkróki á kom-
andi sumri um sama leyti og Sambandsfundurinn verður hald-
inn þar.