Dvöl - 01.07.1938, Side 3

Dvöl - 01.07.1938, Side 3
6. árg. 1938 3. hefti DYÖL Fréttir að heiman Eftir Frederic Boutet í dögun kom maðurinn, eins og hann var vanur, ut úr kofa sín- um upp'i í klettunum og gekk ein- stigið niður að sjónum, og skelj- arnar brustu undir fótum hans í fjörunni. Sólin gægðist upp fyr- ir hafflötinn, sem enn var úfinn og ylgdur eftir hamfarir stormsins. í vesturátt stóð önnur eyja upp úr hafinu eins og varðmaður, lítil en klettótt. Mörgæsirnar voru hinir einu íbúar hennar. Hér og þar svifu sjófuglar þessara suðurhafa yfir öldunum með argi sínu og gargi. Maðurinn leit til loftsins, hafsins °g sjófuglanna eins og ósjálfrátt °S af vana. Hann settist á stein, fók mat upp úr pokanum, sem hann hafði meðferðis, borðaði og drakk vatn úr ávaxtahýði; reykti síðan pípu, sem var vafin með siiæri. í dag var 2. maí 1899. Hann ákvað að taka sér hvíld frá störf- Um þenna dag, vegna þess að firnni ár voru liðin frá því hann kom hingað til eyjarinnar. Hér hafði hann dvalið í þessi fimm ár, langt frá öllum manna- byggðum. Nafn hans var Lenoir. Hann var maður í meðallagi hár, en herðabreiður, fjörlegur og karlmannlegur. Sól og regn höfðu brennt og lamið andlit hans, svo að dökkt hörundið líktist grímu, sem gerði það að verkum, aðaug- un sýndust óvenju-skær og tenn- urnar hvítari en almennt gerist. Hann talaði stundum við sjálfan sig á frönsku og einstöku sinnum á ensku, en af því máli hafði hann lært ofurlítið hrafl á ferðum sín- um. Setningarnar voru kryddaðar slettum úr sjómannamáli. Síðan gamli Ameríkumaðurinn, semfyrst var með honum á eyjunni, dó, talaði hann oft liátt við sjálfan sig, til þess að glata ekki manns- röddinni, og eins til þess að telja sjálfum sér trú um, að hann ætti félaga, sem létti honum byrði ein- verunnar. Til eyjarinnar komu skip á tveggja og þriggja ára fresti, og

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.