Dvöl - 01.07.1938, Page 19

Dvöl - 01.07.1938, Page 19
D V ö L 177 I reiði sinni setti hann heljar mikinn rembihnút á slifsið, smeygði sér í kápu utan yfir kjól- fötin og rauk á dyr. Ef allt hefði gengið sæmilega, þá liefði prófessor Qori án efa verið í góðu skapi þennan dag. Því brúðurin var ein af hans fyr- verandi nemendum, Cesera Reis. í dag átti hún að fá laun fyrir ástqndun sína og dugnað öll hin mörgu námsár, sem hún hafði verið undir handleiðslu prófes- sorsins. Þrátt fyrir alla armæðuna fór prófessor Qori að hugsa um þetta fyrirhugaða brúðkaup og orsak- irnar, sem til þess lágu, nieðan hann gekk eftir veginum. En hvað hét nú annars brúðguminn? Pessi ríki ekkjumaður, sem einn góðan veðurdag hafði komið í kennara- skólann til þess að fá unga stúlku, sem gæti tekið að sér að kenna drengjunum lians. nQrimi? Griti? Nei, Mitri? Já auðvitað hét hann Mitri. Já, Mitri Var það!“ Og nú var sjálfsagt allt tilbúið undir brúðkaupið". Cesera Reis hafði misst föður sinn þegar hún var fimmtán ára °g síðan hafði hún unnið fyrir sér og aldraðri móður með saum- um og tímakennslu. Prófessor Oori hafði dáðst að uugnaði hennar og festu og fyr- ir hans milligöngu hafði hún kom- lzt í framhaldsskóla í Róm. Og þ^gar að herra Qriti — já auðvit- að hét hann Griti, en ekki Mitri — leitaði til hans í áðurnefndum er- indum, vísaði hann auðvitað á Cesera Reis. En nokkrum dögum seinna hafði hann svo komið aftur til prófes- sorsins, niðurdreginn og örvænt- ingarfullur. Cesera Reis hafði þá alls ekki viljað taka við þessu starfi vegna aldurs síns, námsins og gömlu mömmu, sem hún gat ekki skilið við. Og svo myndu skapast slúð- ursögur, ef hún færi til hans, ekkjumannsins, sem kennslukona. Cesera var lagleg stúlka. Hún var eiginlega meira en lagleg — hún var hreint og beint falleg. Og sú reynsla, sem hún hafði orð- ið fyrir, og þeir erfiðleikar, sem hún hafði þurft að stríða við, gáfu henni meiri þroskablæ og yndis- þokka. Og þessi herra Grimi — hann minnti að hann héti Grimi, þeg- ar hann fór að hugsa sig betur um — hann hafði orðið ástfang- Jnn í Ceseru við fyrstu sýn. Slíkt getur svo sem komið fyrir víðar en í skáldsögum. Og þótt hann væri vondaufur um árangurinn hafði hann heimsótt hana þrisvar eða fjórum sinnum, til þess að reyna að tala um fyrir henni. Og nú bað hann prófessor Ciori að gera allt, sem hann mögulega gæti, til þess að fá þessa laglegu, greindu og duglegu stúlku til þess að ganga börnunum sínum í móð- ur stað, ef hún vildi ekki þiggja stöðuna, sem hann bauð henni.

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.