Dvöl - 01.07.1938, Side 31

Dvöl - 01.07.1938, Side 31
D V ö L 189 H E T J A N Eftir Gabriele D’Annunzio Stóru fánarnir með merki hins heilaga Gonselvo blöktu þung- lamalega í golunni. Tröllvaxnir menn með hraust- legan svip, beinvaxnir og tigu- legir, báru þá hægt og varlega eftir strætinu. Eftir sigurinn við Radusa héldu 'buarnir í Mascalico hina árlegu llppskeruhátíð með meiri viðhöfn °g hátíðleika, en nokkru sinni fyrr, og hugir manna loguðu af trúarhita og eldmóði. Allir íbúar borgarinnar fórnuðu ríkulega af uppskeru sumarsins Vlð líkneski verndardýrlings Þeirra. Or hverjum einasta glugga veif- uðu konurnar brúðarslæðum sín- um, i0g eiginmennirnir skreyttu Þúsdyr sínar með græuum sveig- Um> og stráðu blómum á þrep- skildina. Vindurinn fór heldur vaxandi, °S það var eins og það hefði æsandi áhrif á múginn á götun- um. Skrúðganga, sem var að koma f'á kirkjunni, staðnæmdist nú á torginu, og leystist þar sundur í smáhópa. Framan við líkneskis- stallinn, þar sem Pantaleone hafði áður staðið, höfðu átta stórir og hraustlegir menn tekið sér stöðu. Það voru þeir, sem valdir höfðu verið til þess virðulega starfa, að bera líkneski hins heilaga Gons- elvo í skrúðgöngu hátíðahald- anna. Pessir átta útvöldu stóðu þög- ulir og alvarlegir, því að þetta var hátíðleg athöfn, sem þeir höfðu verið kjörnir til að fram- kvæma. Mannfjöldinn beið eftir því, að lagt yrði af stað og at- hugaði þessa stóru, skrautklæddu og kraftalegu menn, sem biðu eft- ir burtfararmerkinu. Líkneski hins heilaga Gonselvo var gríðarstórt og þungt. Líkam- inn var úr dökku bronsi en höf- uðið og handleggirnir úr silfri. „Áfram núl“ Það var Mattio, sem skipaði fyrir. Fólkið þyrptist að úr öllum átt- um, til að sjá skrúðgönguna, og konur og börn voru í hverjum glugga. Mennirnir átta réttu kröftuglegU úr handleggjunum, tilbúnir að leggja af stað. „Einn, — tveir, — þrír! — hrópaði Mattio. Með einu, sameiginlegu átaki reyndu mennirnir að lyfta líkn- eskinu upp af stallinum, en þung-

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.