Dvöl - 01.07.1938, Side 43

Dvöl - 01.07.1938, Side 43
D V Ö L 201 izt, og þá heldur ekki hjá stétta- skiptingu. En sú einangrunar- og samkeppnisstefna, sem stéttabar- átta nútímans er rnótuð af, er að- eins þröngsýn sérhagsmunastefna. Lað eru sjúkdómseinkenni í þjóð- lífinu. Nær því daglega berast fréttir um einhverja stétt eða hóp manna, sem stofnað hafi með sér félag til þess — , að gæta hagsmuna sinna — eins og það er oft iorðað. En fyrir hverjum? Vafalaust fyr- ir einhverjum öðrum stéttum. I>að getur vel verið, að þetta sé að verða nauðsynlegt til þess að verða ekki undir í samkeppn- inni. En hamingjan hjálpi þeirri æsku, sem á unga aldri er hrif- in inn í þetta andrúmsloft sérhags- munanna, til þess að mótast þar. Þar sem hugsað er í hópum, og allt er vegið og mælt á mæli- kvarða s'téttarinnar, en ekki þjóð- félagsins. Hvað getur annað upp af slíku vaxið en eigingirni og múgmennska? Það verður að gera þá kröfu til allra þeirra, sent á einhvern hátt bera ábyrgð á uppeldi æskunn- ar, að það sé lögð rík áherzla á að kenna æskunni að liugsa sjálfstætt, eftir því, 'sem þroski hennar nær, og þá ekki síður hitt, að láta hana finna til þess í hví- vctna, að það sé til þess ætlazt af lienni, að lnin beri sjál'f ábyrgð allra sinna hugsana, orða 'Og at- hafna, og slíkt uppeldi til sjálfs- ábyrgðar hefur ef til vill aldrei verið nauðsynlegra en eimnitt nú. Það er hinn mesti háski, að gefa ungu fólki tilefni og tækifæri til að velta ábyrgð gjörða sinna yfir á annara herðar, kenna öðrum um allt það, sem illa fer, hvort sem það eru einstaklingar eða þjóð- félagið allt. Enginn ungur maður á skilið að komast áfram í heim- inum, sem ekki temur sér sjálfs- ögun og sjálfsábyrgð. Svo að aftur sé horfið að hóp- hugsun stéttabaráttunnar, sem stundum getur gripið svo um sig að hún heltekur heilar þjóðir, þá verður slíkt ástand enn alvarlegra þegar þess er gætt, að þar er það ekki allur almenningur stéttanna, sem hugsar og ræður, heldur oft og tíðum einn eða fáir menn, og það ekki ætíð þeir völdustu. Við lifum á tímabili foringja- dýrkunar. Við lifum á tíma- bili skipulagningar og aHskonar kerfa, sem geta verið nauðsyn- leg, en verða oft hættuleg snara hinum sjálfstæða persónuleika, ekki sízt ungra manna. Og þá erum við komnir að þeim þiætti í baráttunni um sálir æsku- manna, sem líklega er af mestu Icappr sóttur, en það er skipting- in í stjórnmálaflokka. Sú barátta er nú á tímum svo siðlaus og ger- sneidd allri ábyrgðartiKinningu, að jafnvel börnum innan við ferm- ingaraldur, er hmndið inn í þetta ábyrgðarleysi múgmennskunnar,

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.