Dvöl - 01.07.1938, Síða 69
D V ö L
227
á þessum ákveðnu svæðum. Sum-
staðar eru verndaðar Ieifar af
fornum mannvirkjum eftir Indí-
ána-þjóðflokka, sem nú eru út-
dauðir. Á friðlýstu svæði má ekk-
ert skerða í náttúrunni. Allt dautt
og lifandi, smátt og stórt, hverju
nafni sem nefnist, á að njóta þar
algerðrar friðunar og verndar.
Námugröftur er þar bannaður.
Ekkert jarðrask má gera þar,
nema óhjákvæmilegt sé ,að leggja
vegi og brýr, eð,a setja niður gisti-
*hús vegna ferðamanna. Öll slík
•nannvirki eru gerð með ráði
stjórnarinnar og eftir hennar fyr-
irsögn. Það er hliðstætt því, að
koma inn í friðlýstan þjóðgarð,
og að skoða náttúrugripasafn eða
fornminjasafn. Menn eiga aðeins
kost á að skoða það, sem fyrir
augun ber, en ekki snerta neitt
eða færa úr skorðum.
Sequoia og Grant þjóðgarðarn-
ir eru einstæðir í sinni röð að því
leyti, að þar vaxa elztu og stærstu
iré, sem til eru á jörðinni. Það
eru Sequoia fururnar. í báðum
görðunum vaxa rúmlega ein milj-
ón Sequoia tré, af öllum stærðum
og aldri. Af þeim eru um tólf þús-
únd 3 m. og þar yfir að þvermáli.
Nokkur eru allt að 90 m. há.
Elzta og nafnkunnasta tréð heitir
General Sherman. Það er 85 m.
hátt og 11,13 m. að þvermáli nið-
Ur við jörð, en ummálið er 34,95
in. 30 m. frá jörðu er þvermálið
ö,13 m. Af þessu má sjá, að hér
er ekki um neina smáplöntu að
ræða, enda er það talið minnst
4000 ára gamalt. Næst því að
stærð er General Gr.ant tréð. Það
er 80,5 m. hátt og 10,7 m. að
þvermáli.
Fyrsti hvíti maðurinn, sem fann
stærsta tréð, hét James Walver-
ton. Það var 7. ágúst 1879. Hann
nefndi það Gener.al Sherman eftir
herforingja, sem stjórnaði her-
deild þeirri í þrælastríðinu, er
hann var í. Þetta risatré vex 2197
m. fyrir ofan sjávarflöt, það er
um 80 m. hærra en hæsta fjall
á Islandi.
Það er algengt að Bandaríkja-
menn kenna einstök tré við helztu
þjóðmæringa sína og merkismenn
eins og t. d. Abr.aham Linooln,
Georg Washington, William Mc-
Kinley o. fl. Risafurur, semnefnd-
ar eru eftir þessum mönnum, eru
með þeim stærstu í þjóðgörðun-
um. Þær eru allt að 10 m. að
þvermáli og 80—90 m. háar og
um 2500—3800 ára gamlar. Enda
þó að trén séu þetta gömul, eru
engin hrörnunarmerki sjáanleg'á
þeim. Þau virðast því enn vera í
fullum blóma lífsins. Enginn get-
ur gizkað á, hve margar aldir
eða ára þúsundir þau eiga enn eft-
ir ólifað. Sequoia trén hafa ekki
átt, um æfina, hættulega óvini að
stríða við. Þau eru alveg laus
við sveppi og önnur sníkjudýr,
sem oft herja á aðrar trjátegundir
og gera þeim tjón. Skógareldar
hafa stuudum geysað umhverfis
þau, en gert þeim furðu lítinn