Dvöl - 01.07.1938, Page 70
228
D V Ö L
r
skaða. Einkum eldri trjánúm.
Börkurinn verður um hálfan met-
er á þykkt, eða vel það, og er
nálega alveg eldtraustur. Risa-
trjánum stafar mest hætta af eld-
ingum. Pær hafa brotið toppinn af
mörgum þeirra, en hann hefir þó
vaxið aftur á löngum tíma. Eitt
risatréð, sem var um 100 m. hátt,
hafði brotnað niður við rót og
fallið um koll. Stofnsárið var gert
vel slétt svo að hægt væri að telja
árshringana, en þeir reyndust
töluvert yfir 4000. Tréð var 12,4
m. að þvermáli, að berkinum
meðtöldum, en hann var 60 cm.
þykkur. Til þess að gera -sér grein
fyrir gildleika bolsins mætti stinga
hæl ofan í sléttan grasflöt, binda
við hann snæri og afmarka hring
umhverfis hann 6,5 m. frá mið-
deplinum, fengist þá jafnstór flöt-
ur og bolurinn tekur yfir.'
Elztu trén voru byrjuð að vaxa
áður en pyramidarnir á Egypta-
landi voru byggðir, og fyrir fall
Trójuborgar. Tugir þúsunda voru
orðin risavaxin þegar Kristur
fæddist. Sequoia trén hafa þannig
verið að vaxa iog þroskast gegn-
um allar aldir mannkynssögunn-
ar. Kynslóðir hafa fæðzt og dáið
menning hefir skapazt og þróazt
í aldaraðir hjá þjóðunum, liðið
undir lok og önnur komið í stað-
inn, en risafururnar hafa alltaf lif-
að og haldið velli, á hverju sem
hefir gengið hjá mannfólkinu. Vel
má vera að núverandi menning
þjóðanna eigi eftir að taka stór-
kostlegum breytingum áður en
risatrén, sem nú eru í blóma lífs-
ins, falla í valinn.
Risatrén vaxa aðallega á 13
stöðum í báðum þjóðgörðunum.
Trjálundar þessir ná, að saman-
töldu, yfir rúmlega 38 ferkm.
svæði. í hagstæðri veðuráttu
framleiðir eitt Sequoia tré milj-
ónir frækorna á einu ári. Trén
bera blóm á áliðnum vetri, með-
an jörðin er ennþá þakin 2—3
m. þykku snjólagi. Blómin eru
græn-bleik eða gulleit, en köngl-
arnir venjulega dökkgrænir. Þeir
eru um 6—7 cm. langir. Jafn-
skjótt og fræin verða fullþrosk-
uð opna könglarnir sig og losa
sig við þau, en sjálfir sitja þeir
eftir á greinunum mánuðum sam-
an. Fræin eru mjög siná, vængj-
uð og afarlétt. Þau svífa' hægt
ofan á jörð eins og snjókorn í
logni, eða berast með vindinum
langar leiðir frá trjánum. Engin
trjátegund í Californiu framleiðir
eins mörg frækorn á ári, eins og
Sequoia trén. Á einni grein t. d.,
sem var um 2—3 cm. að þvermáli,
voru taldir 480 könglar, og í
hverjum köngli þroskast venju-
lega um 2—300 frækorn. Menn
hafa gizkað á, að fræplöntur af
einum Sequoia trjálundi mundu
nægja til að gróðursetja alla fjall-
garða hnattarins þessari trjáteg-
und. Fræinu hefir verið sáð víða
í Ameríku og Evrópu. Ræktun
plantnanna hefir yfirleitt gefizt
vel. Þær elska ljósið og þrífast