Dvöl - 01.01.1941, Side 8

Dvöl - 01.01.1941, Side 8
2 DVÖL en harmur og hryggð settust að 1 sál Ziu Batóru. Hún gat ekki gleymt, hún var helsærð og harmi lostin, og þó að hún þyrfti engar áhyggjur að hafa út af líkamlegum þörfum sínum, fannst henni hún vera fátækari hinum snauðasta beiningamanni. Hún sá hamingjusól sína ganga til viðar við hinn óljósa sjónhring framtíðarinnar. Hús Batóru, með útskornu vegg- svölunum, byrgði útsýnið frá kirkj- unni og bar við greinilegan sjón- deildarhringinn í hinu gullroðna sólarlagi septemberkveldanna, sem minnti svo mjög á bakgrunn myndarinnar af upprisu Krists uppi yfir altarinu. En húsið var ein- manalegt og andlega tómt, alveg eins og sál konunnar, sem átti það, og þó var þar gnægð efnislegra guðsgjafa. Sadurra, einkabarn Ziu Batóru, hafði orðið ástfangin af ungum manni, fátækum og af lágum ætt- um. Móðirin hafði, vegna stöðu sinnar í þjóðfélaginu, gert uppreisn gegn ást dóttur sinnar, sem blátt áfram óeðlilegri, þar sem hún, auk þess að vera efnuð, taldist til auð- mannaflokks nokkurs á Sardiníu, mikils og voldugs flokks, sem gegn- sýrður var af hroka Spánverjanna, er voru um eitt skeið auðugastir og valdamestir allra íbúa eyjarinnar. En hin fagra, tvítuga Sadurra flýði úr foreldrahúsum til þess að búa með manninum, sem hún elsk- aði. Plótti hennar olli takmarka- lausu hneyksli í Bitti og nálægum þorpum. . Þetta var þungt áfall, og Zia Bat- óra var gersamlega yfirbuguð. Eng- in móðir gat elskað dóttur sína heitar en hún. í þau tuttugu ár, sem liðin voru frá morði manns hennar, hafði öll ást hennar og von snúizt eingöngu um Sadurru. Hún sá í anda glæsilega framtíð barns- ins síns, sá hana gifta auðugum og mikilsvirtum manni úr flokki hennar, manni, sem hefnt gæti dauða föðurins. Nú höfðu allar óskir hennar og vonir brugðizt, allar tilfinningar hennar breytzt. Zia Batóra kraup á kné á arinhellunni og formælti dóttur sinni. Hún formælti móð- urmjólkinni, sem gefið hafði barninu næringu. Hún formælti hærum sínum. Og hún sór við gullna róðukrossinn á talnaband- inu sínu, að hugsa aldrei fram- ar um dóttur sína, nema sem svarinn óvin. Þann veg bjó hún alein í húsi, snauð að huggun og von. Hún leit á sjálfa sig sem smánaða og sveið sáran velgengni þeirra stéttarsystra, sem afbrýði- semin hafði gert að óvinum hennar. Þó varð ekkert merki sorgar né beiskju séð í fölu, stranglegu andliti hennar, heldur ekki í hörð- um, köldum og hálflokuðum aug- um hennar né á þunnu, hvítu vör- unum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.