Dvöl - 01.01.1941, Síða 10

Dvöl - 01.01.1941, Síða 10
£) VÖL. ið til kirkjunnar, hélt skrúðgangan af stað. Fyrst gekk prestur og bar mjótt, logandi vaxkerti. Á eftir honum kom fylking biðjandi manna frá ýmsum þorpum, undir fánum trúarfélaga sinna. Sérhver skrúðfylking gekk einn hring um- hverfis kirkjuna. hvarf aftur inn og kom út að nýju vegna nýrrar gjafar. Þannig gátu tylftir slíkra skrúðgangna farið fram stutta morgunstund. Gagnstætt öllum þessum hátíð- leika, gáfu hinir léttúðugu sig á vald þjóðdönsum sínum — „duru- duru“-dönsunum, hinum megin á torginu. Glaðværðin var mikil, þrátt fyrir ryk og steikjandi sól- arhita; Götusalar gengu um meðal mannfjöldans og buðu hinum hungruðu hressingu og svala- drykk hinum þyrstu. Zia Batóra gekk inn í kirkjuna. Hún var troðfull af fólki, sem komið var víða að, ólíkt að klæða- burði og mælti á ólíkum tungum. Sumt hafði komið margra mílna leið, berfætt og með óhjúpuð höf- uð. Frá þessum sundurleita söfn- uði heyrðist látlaus kliður, sem nálgaðist hávaða. Kvenfólkið masaði í sífellu, án þess að vera sér meðvitandi um hávaðann, sem það gerði. Ziu Batóru gekk erfiðlega að komast leiðar sinnar gegnum mannþröngina og tók það ráð, að ýta við náunganum. Með þolin- mæði og þrautseigju tókst henni að lokum að komast inn á mitt kirkjugólfið, þar sem hún var vön að biðjast fyrir. „Hvað er um að vera?“ spurði hún kunningjakonu sína. „Það er ung stúlka, sem illur andi er i,“ svaraði konan, sem á- vörpuð var. Henni var mikið niðri fyrir. „Að lokinni guðsþjónustu verður reynt að reka hann út af henni. Megi drottinn veita guðs- móður að gera kraftaverk. Þetta hefir borizt til eyrna alls mann- fjöldans, og allir eru titrandi af ótta og skelfingu. Það er haldið, að hin glataða sál sé sál prests, sem gerðist trúníðingur," hvíslaði hún með dularfullum svip. „Hvaðan er stúlkan?" „Frá Ala. Menn segja, að prest- ur þar hafi rekið út andann. En andinn fékk hvorki inngöngu í himnaríki né í hreinsunareldinn, og jafnvel ekki í helvíti, svo að hann var neyddur til að reika um á jörðunni, unz hann fór að lokum inn í líkama þessa saklausa barns.“ „En hvað þetta er hræðilegt!“ „Já, vesalings stúlkan verður að þola stöðugar pyndingar og hegð- ar sér eins og hún væri vitskert. Hún froðufellir, æpir og guðlast- ar. Líkamsþrek hennar er undra- vert, miðað, við aldur hennar. Hún brýtur allt, sem hún nær til.“ Það fór hrollur um Batóru og hún leitaðist við að sjá í svip þessa aumkunarveröu sjón. „Hún er ekki í kirkjunni núna. Það verður komið með hana í böndum að lokinni guðsþjónustu.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.