Dvöl - 01.01.1941, Side 13

Dvöl - 01.01.1941, Side 13
D VÖL 7 sitt með leyndardómsfullri röddu. Og hún þóttist heyra konuna frá Ala mæla á þessa leið: „Hvers vegna kemur þú hingað með harm í hjarta? Hvers hefir þú að óska? Hvað þarft þú að biðja um? Enginn er vansæll nema ég. Hvaða móðir getur verið eins ógæfusöm og ég? Batóra, Batóra, vinn þú bug á stærilæti þínu.“ Og nafn hennar var endurtekið þúsund sinnum af bergmáli kirkj- unnar. Öldur iðrunar og sam- vizkubits ólguðu í brjósti hennar, eggjuðu hana til að snúa sér við og kyssa kinnar ungbarnsins, en hún ggt það ekki, þó að hún næst- um þvi fyndi andardrátt þess á andliti sínu. Nei, hún gat það ekki ennþá. Hin átakanlega sjón við altarið — sá móðurharmur og móðurkær- leiki, er þar gat að líta, hafði kom- ið af stað ölduróti í huga Batóru, og grátekki móðurinnar, sem yf- irgnæfði ópin 1 barninu, olli henni sárra, líkamlegra þjáninga. Hún vissi ekki hvar eða hvernig, en hún fann til líkt og tekið væri fyrir kverkar henni og verið væri að kyrkja hana. Andsetna stúlkan brauzt um og tókst að slíta af sér böndin. Það varð að kalla á lögregluna til að halda henni. Prestarnir leituðust við að fá hana til að kyssa róðu- krossinn, en þær tilraunir höfðu þau ein áhrif, að hún guðlastaði þvl meira. Allt í einu tók Batóra eftir þvi, að móðir stúlkunnar reis á fæt- ur, eins og eftir innri skipan, og tók að þerra tár sín. Hún tók róðukrossinn af prestinum og hélt honum framan við ándlit dóttur sinnar. Svipur hennar bar vott um hina dýpstu lotningu. Litla stúlkan var nú alveg ró- leg augnabliksstund. Það var eins og töfrar væru hér að verki. Augnaráð hennar varð þreytulegt og dreymandi. Hún kraup á kné í bæn og endurtók í sífellu orðin: „Ave María,“ með röddu, sem hún hafði fullt vald yfir og var þrung- in tilbeiðslu. „Figlia mia — dóttir mín,“ hrópaði móðir hennar gagntekin af gleði. Mannfjöldinn kraup á kné og tók með skjálfandi röddu undir: „Ave María“. Það hafði gerzt kraftaverk. Frá öllum söfnuðinum heyrðist grát- ekki og kveinstafir, sem er ein- kenni óttans við hið yfirnáttúr- lega, einkenni undrunarinnar og hræðslunnar, sem maðurinn finn- ur hið innra með sér, þegar hann í smæð sinni stendur andspænis hinu leyndardómsfulla. Zia Batóra var ein af þeim, sem þetta reyndi. Hún sneri heim á leið til þorps- ins síns og bar barnið í faðmi sér, en Sadurra gekk við hlið hennar. En íbúarnir í Bitti sögðu hver við annan: „Þetta ár hefir hin heilaga guðsmóðir gert frekar tvö en eitt kraftaverk."
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.