Dvöl - 01.01.1941, Page 38

Dvöl - 01.01.1941, Page 38
32 DVÖL hendinni. Að þvi loknu er stigið með öðrum fæti allt í kring um plöntuna. Heldur maður þá venju- lega í topp plöntunnar á meðan, til þess að hún skekkist ekki í hol- unni. Þegar gróðursett er, er mjög áríðandi að gæta þess, að plantan standi ekki dýpra í jörðu eftir gróðursetningu heldur en hún hefir staðið áður. Mörgum hættir við að gleyma þessu, og mesti urm- ull plantna hefir dáið af því ein- göngu, að þessa var ekki gætt. Og jafnvel þótt plantan sé ekki sett svo djúpt, að henni sé taráður bani búinn, kippir það mjög úr vexti, ef hún er sett dýpra en henni er eðlilegt. Það er mikils um vert, að moldin sem setja á í, hafi verið vel unnin, og allra bezt er, ef jarðvinnsla hefir farið fram, að minnsta kosti einu sinni, hálfu ári áður en gróður- setning er framkvæmd. Yfirleitt er þægilegra að setja plöntur í beð heldur en í holur. Jarðvinnslan verður betri á þann hátt, og auk þess verður öll hirðing léttari. Ekki er hægt að gefa neinar reglur um það, hve þétt skal setja plöntur í upphafi. í frjóum og góðum jarð- vegi mega plöntur standa gisnar en á ófrjóu landi. í útjöðrum garða verður að planta þéttar en inni í görðunum. Séu plöntur settar þétt, vaxa þær að jafnaði miklu hraðar en gisnar plöntur. En af þvl að plönturnar kosta nokkurt fé, og menn hafa oft minna af þeim en skyldi, er freisting að setja þær eins gisið og mögulegt er. Við út- jaðra garða má telja sæmilegt að hafa helmingi lengra milli plantn- anna en meðalhæð þeirra er. Inni í görðum má hafa bilið upp undir helmingi lengra eða fjórum sinn- um hæð plantnanna. Reynivið má ávallt setja gisnar en björk. Sáning. Fyrir þá, sem ætla sér að koma upp stórum görðum, er sjálfsagt að sá til trjáa. Á þann hátt er hægt að fá gnægð plantna fyrir lítið verð á fáum árum. Sáning birki- fræs er mjög einföld. Birkifræi má sá í hvers konar jarðveg, en það sprettur einna bezt á fyrsta ári, ef jarðvegurinn er ofurlítið deig- lendur. Fræinu má sá í flög, sem gerð eru á þann hátt, að ristar eru lengjur úr grassverðinum með torfljá. Þó má ekki rista svo djúpt, að ljárinn skeri alveg niður úr grasrótunum. Dálítill rótarþófi verður að vera eftir í flaginu, því að annars veltir holklakinn ung- viðinu þegar á fyrsta hausti. Birki- fræinu er dreift um flagið, og á því troðið með fætinum. Það þarf ekki að hylja það moldu. Fræinu má einnig sá í beð, og við það verður eftirtekjan meiri. En um- hirðan vex að sama skapi. Hirðing og grisjun. Hirðing garða er fólgin í því að sjá um að plöntunum líði ávallt sem bezt. Mestrar aðhlynningar þurfa plönturnar með fyrsta árið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.