Dvöl - 01.01.1941, Page 62

Dvöl - 01.01.1941, Page 62
56 DVÖL konunni, en láttu hana ekki verða þín vara. Láttu mig svo vita, hvar hún býr.“ Pilturinn þrammaði af stað í humátt á eftir henni. Löng stund leið. ,.Ó, herra minn,“ sagði hann, þegar hann kom aftur, og hló við, eius og mönnum verður stundum á, þegar þeir eru tilneyddir að segja eitt- ' hvað miður skemmtilegt. „Ég elti þessa konu út úr borginni og út að þurrum árfarvegi, skanimt það- an, sem glæpamennirnir eru líf- látnir. Þar býr hún í hrörlegu og óhreinu hreysi. Það er mjög and- styggilegur staður, herra minn.“ „Á morgun skalt þú fylgla mér í þetta hreysi,“ svaraði málarinn. „Á meðan mín nýtur við skal hana hvorki skorta nógan mat og föt né góða aðbúð.“ Alla furðaði á þessum orðum. En þegar hann hafði sagt söguna um dansmeyna, þóttu öllum þau eðlileg. VI. Málarinn lagði af stað með iæri- svein sinn að morgni næsta dags, einni stundu fyrir sólarupprás, á- leiðis að árfarveginum þurra utan við borgina, þar sem þeir úlskúf- uðu bjuggu. Kofahurðinni var hallað að stöfum. Málarinn drap nokkur högg á hurðina, en fékk ekkert andsvar. En er hann sá, að lokur voru ekki dregnar fyrir að innan, opnaði hann hljóðlega og kallaði inn í gættina. Þegar eng- inn anzaði, afréð hann að ganga inn. Á þessari stundu var hugur hans viðs fjarri: Hann minntist þess gerla, er hann stóð forðum daga, sárþreyttur drengur, við dyr litla býlisins á heiðinni og baðst næturgistingar. Hann gekk hljóðlega inn og sá, að konan lá þar. Ofan á sér hafði hún slitna og stagaða ábreiðu. Hún svaf auðsjáanlega. Á hrufóttri hillu var Búddha- myndin og minningarspjaldið, sem hann hafði séð fyrir fjörutiu ár- um. Nú sem fyrrum logaði ofur- lítið ljós fyrir framan spjaldið. Líkneskið af gyðju miskunnsem- innar með mánabauginn um höfuðið var horfið. En á veggn- um gegnt helgigripunum hékk málverkið, sem hann sjálfur hafði gert. En neðan við það var mynd af gyðjunni Kwannon, sem að- eins bænheyrir fólk einu sinni. Fátt var annað í þessu fátæklega hreysti, aðeins fatalurfur af ver- igangskonu, pílagrímsstafur og betliskál. En málarinn leit ekki við þessu heidur hugðist að vekja hina sof- andi konu og gleðja hana. Hann nefndi glaðlega nafn hennar tvisvar eða þrisvar sinnum. En þá fyrst sá hann, að hún var dáin. Hann horfði á hana og furðaði sig á því, hversu ungleg hún virtist. Hún hafði öðlazt að nýju sviplétt yfirbragð, einhvern æskubrag. Sorgarrúnirnar á and- litinu höfðu mýkzt, hrukkurnar horfið, því að meistari lífsins, sem er öllum jarðneskum meisturum æðri, hafði snortið hana sprota sínum. Á Smithsonian-safninu í Bandaríkjun- um er stærsti gimsteinn, sem til er. Það er topazsteinn, 350000 karat eða 153 pund. • Svisslendingur að nafni Walter Minder kveðst hafa fundið „síðasta frumefnið". Frumefni þetta nefnir hann „Helvetium", en Helvetia er hið svissneska nafn á Sviss. •
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.