Dvöl - 01.01.1941, Page 84
78
£> VÖL
Hölundarnir
Grazia Deledda
er fædd á Sardiníu árið 1872. Hún var
lítið þekkt utan heimalands síns áður en
hún fékk bókmenntaverðlaun Nobels árið
1926, en síðan hafa bækur hennar verið
þýddar á fjölda tungumála. Sögur Grazia
Deledda bera með sér djúpan skilning á
eðli, uppeldi og kjörum persónanna eöa
söguhetjanna, en þær eru ætíð samland-
ar skáldkonunnar og oftast fólk á heima-
eyju hennar. Prægasta bók hennar er
skáldsagan Móðirin.
itS 1
RiJcard Long
fæddist í Þórshöfn í Færeyjum 23. jan-
úar 1889, sonur prentsmiöjustjóra þar.
Hann stundaði nám í Kaupmannahöfn og
nam læknisfræði að loknu stúdentsprófi.
Hann lauk þó eigi embættisprófi. Gerðist
hann kennari í Þórshöfn 25 ára gamall,
Rikard Long
og hefir hann lengst af síðan stundað
kennslustörf, einkum tungumálakennslu.
Rikard Long er forvígismaður í ilestum
menningarfélögum og bókmenntalífi Fær-
eyinga. Er hann ókvæntur og ver öllum
stundum í þágu færeyskrar menningar-
baráttu. Hann er snjall rithöfundur, og
hefir ritað margt ágætra ritgerða og
greina, sem margar hverjar hafa biizt í
tímaritinu Varðin, sem hann er ritstjóri
að. Saga sú, er birtist í þessu hefti Dvalar,
er eitt af því fáa, sem til er eftir hann
af slíku tagi. Hann er ljóðskáld gott, en
hefir eigi gefið út ljóðabók. Nokkrar bæk-
ur hefir hann þýtt á færeysku og samið
færeyska málfræði. Hann er vel að sér um
íslenzk mál og talar íslenzku. Hann hefir
tvívegis komið hingað til lands og á hér
frændur, Ríkarð Jónsson myndhöggvara
og Valdimar Long í Hafnarfirði meðal
nafnkenndra manna.
M. J. Mac Leod
er ungur, amerískur rithöfundur, sem
vakið hefir allmikla eftirtekt í Banda-
ríkjunum á síðustu árum, en er lítt þekkt-
ur utan heimalands síns enn sem komið
er. Hann er ádeilurithöfundur mikill og
óvæginn, eins og saga sú, er Dvöl birtir
nú eftir hann, ber með sér.
Lafcadio Hearn,
(1850—1904), öðru nafni Yakumo Koi-
zumi, fæddist á grísku eyjunni Leucadia
á Ioniska hafinu árið 1850. Hann varð
snemma að sjá fyrir sér sjálfur og hlaut
fremur litla menntun. Á unga aldri flutt-
ist hann til Ameríku og gerðist þar
blaðamaður. Árið 1891 fór hann til Japan
og svo virðist, að hann hafi þar loks
fundið það, sem hjarta hans þráði. Samdi