Dvöl - 01.04.1941, Blaðsíða 80
158
DVÖL
Höfnndarnlr
Arthur Schnitzler
er Austurríkismaður, fæddur í Vínar-
borg 1862. Hann nam læknisfræði og gerð-
ist læknir. En brátt tók hann að hneigj-
ast til skáldiökana og varð, er fram liðu
stundir, ágætasta leikritaskáld Austurrík-
ismanna. En einnig hefir hann skrifað
margar mjög snjallar sögur, stu'ttar og
langar. Hann virðir mannlífið fyrir sér
með nákvæmni læknisins og er glögg-
skyggn sálfræðingur, en einkum hefir
hann lýst sálarlífi kvenna af mikilli skarp-
skyggni. Arthur Schnitzler er ekki gjarnt
að fella dóma, en hann lýsir söguhetjum
af því meiri nákvæmni og rekur sundur
hinn flókna vef sálarlífsins.
Leo Nikolajevitsch Tolstoy
er frægastur allra rússneskra rithöf-
unda. Hann fæddist árið 1828. Hann var
af hefðarættum og stundaði nám í há-
skólanum í Kasan og Pétursborg. Tuttugu
og þriggja ára gamall gerðist hann her-
maður í Kákasus, og lifði þá um skeið
svallsömu og gálausu lífi. í Krímstriðinu,
litlu síðar, var hann hermaður í Seva-
stopol, borg á Krímskaganum, er óvina-
her sat lengi um. Á dvalarárum sínum í
Kákasus hóf hann rithöfundarstarf sitt,
og rak síðan hver bók hans aðra. Er Leo
Tolstoy talinn meðal hinna allra stór-
brotnustu skálda, er uppi hafa verið. Hann
lét þjóðfélagsmál mjög til sín taka og bar