Dvöl - 01.09.1944, Síða 60

Dvöl - 01.09.1944, Síða 60
202 D VÖL Monterey en nokkurs staðar annars staðar í Bandaríkjunum.“ Faðir hans virtist hreykinn yfir þessari staðreynd. „Og svo kemur hafið?“ „ Já, svo kemur hafið.“ „En á milli?“ hélt drengurinn áfram með þráa. „Veit enginn hvað er á milli?“ „Jú, einstaka maður, býst ég við. En það er ekkert að hafa þar. Og lítið um vatn. Ekkert nema klettar og urðir og fáeinir hélunjólar.“ „Þangað væri gaman að koma.“ „Til hvers? Það er ekkert þar.“ Jói vissi að eitthvað hlaut að vera þar, eitthvað stórkostlegt af því það var ókannað, eitthvað hulið og leyndardómsfullt. Hann fann það á sér. „Veizt þú hvað er uppi á fjöllunum?“ sagði hann við móður sína. Hún leit á hann og síðan á hrikaleg fjöllin. „Ekkert nema björninn, hugsa ég.“ „Hvaða björn?“ „Nú, björninn sem fór yfir fjöllin til að vita hvað hann sæi.“ Jói spurði Billa Búkk, vinnumanninn, hvort ekki væri hugsanlegt að það væru gömul ríki týnd uppi á fjöllunum, en Billi var á sama máli og faðir hans. „Það er ekki trúlegt,“ sagði Billi. „Þar væri ekkert að éta, nema þar búi fólk sem getur etið kletta.“ Þetta voru einu upplýsingarnar sem Jói fékk, og þær gerðu honum fjöllin kær, og geigvænleg. Hann hugsaði oft um hvernig einn kamb- urinn kæmi eftir annan; mílur vegar, unz að lokum tæki sjórinn við. Þegar tindarnir voru rósrauðir á morgnana löðuðu þau hann til sín; og þegar sólin var horfin fyrir brúnina á kvöldin og fjöllin voru purpura- rauð og dapurleg, þá hafði Jói geig af þeim. Þá voru þau svo fjarlæg og ópersónuleg að sjálf tign þeirra ógnaði honum. Svo leit hann til fjallanna í austri, Gabílansfjallanna, og það voru hýrleg fjöll, bæir í dölunum, og hlíðarnar vaxnar barrtrjám. Hér var byggt land, og í brekkunum höfðu orustur verið háðar gegn Mexíkönum. Hann leit snöggvast aftur til háfjallanna og það fór hrollur um hann, munurinn var svo mikill. Hvammurinn neðan við bæinn var bjartur og friðsæll. Bærinn ljómaði í hvítu ljóshafi og hesthúsið var brúnt og hlýtt. Rauðu kýrnar úti á hæðinni lötruðu bítandi í norður. Jafnvel dökka sýprustréð við skálann var óbreytt og traust. Hænsin rótuðu upp moldinni í garðinum, hröðum tiplandi sporum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.