Dvöl - 01.09.1944, Page 73

Dvöl - 01.09.1944, Page 73
dvöl 215 ina stakkagerdi, á blaðsíöu tíu er meginn Þorri bændanna látinn búa í bænum, og á tólftu síðunni er maður tekinn til bænar o/ séra Helga Hálfdánarsyni. Slikar smá- villur eru langtum fleiri en vera skyldi, og lýta bókina aö þarflausu. Um stíl höfundar er það að segja, að hann er nokkuð misbrestasamur. Stund- um nær hann töluverðu lífi í frásögnina, en þegar honum ver'ður það á að gera til- raunir til að draga niðurstöður af for- sendum, tekst það oft báglega. Svo er að orði komizt um mormóna: ,,Og því meira sem menn leggja á sig fyrir sína nýju trú, en einkum ef hún er ofsótt, þess dýrlegri ljómar hún i sál trú- arans sem nýtt sannleiks ljós, og oft finnst honum þá, að allir aðrir gangi í myrkri °g séu heiðingjar, sem ekki þekkja hans nýju guðspjöll, né hafa hlotið hina meiri °g seinni skirn eins og hann.“ Eða hvað segja menn um málsgreinar, eins og þessa: ,,En þrátt fyrir þessar misheppnuðu til- raunir, þá samt er Útflutnings félagið Þingeyska og störf þeirra Einars og Jakobs 1 sambandi við þau mál, aðdáunarverð, Þegar öldin, sem þeir lifa á og aðstaða Þeirra norður í hafsauga, er tekin til fhugunar, því svo ólíkt er þeirra gamla viðhorf öllu, sem nú blasir við, hvar sem iitið er yfir hvítra manna lönd, 1940, að hiið'að við undangengnar aldir, þá breytir hver ára tugurinn, sem við lifum á, útliti heimsins meira en hvert árhundraö fyrr- úm.“ álaður skyldi halda að þetta væri tekið hf Minnisverðum tíðindum eða Klaustur- hósti! Ekki er þaö sjaldgæft að orðskipan hrenglist vegna þess, að hugsað er á öðr- 1Jm tungumálium en íslenzku, ensku eða iafnvel dönsku. Þess vegna er einhver Jameson „minnug vel fyrir aldur sinn,“ SVo að lítið dæmi sé tekið. há virðist höfundur gæta þess miður en skyldi, að það er ábyrgöarhluti nokkur að stía því sundur, sem bæði guð og menn hafa, saman tengt. Er eins og hann ráði oft ekki við sig, þegar fyrir koma sam- sett orð, af einskærri löngun til að búta þau í sundur og gera tvö úr einu. Virðist ekki taka því að nefna einstök dæmi, enda er árátta þessi svo hatrömm, að hennar sjást merki á flestum opnum bókarinnar. Hér hefur nú verið drepið lauslega á nokkra galla bókarinnar, og skal þá vikið að' hinni hliðinni. Meginkostur sögu þessarar er sá, að þar er saman dreginn á einn stað allmikill * fróðleikur um upphaf íslenzkra vestur- ferða, og getið mikils fjölda útflytjenda. Er það athyglisvert, að ættfræðin setur verulegt svipmót á ritið. Virðast Vestur- íslendingar hafa kunnað að stytta sér stundir við ættvísina, engu síður en frændur þeirra austan hafsins. Um áreiðanleik allrar þeirrar mann- fræði, sem ritið hefur að geyma, verður lítt dæmt af skyndilestri einum. En mjög veltur gildi bókarinnar á því, hvort þar er af trúleika um fjallað eða ekki. Þess má vænta, að útgáfa þessi falli nú ekki niöur öðru sinni. Ýmsir þeir ann- markar. sem hér hafa verið gerðir að umtalsefni, eru ekki stærri en svo, að þá mátti laga í próförk. Ætti Þjóðræknis- félagið að ráða bætur á þessu, að því er snertir síðari bindin. Áður en útgáfu lýkur þyrfti einhver bænheitur maður að falla á knébeð og biðja hinn mikla höfuðsmið að skjóta útgefendum og höfundi þvi í brjóst, að hafa nafnaskrá með ritinu. G. G. í-í'- 4 £-1 t tWtf' Landiö er fagurt og frítt eftir Árna Óla, blaðamann. Útg. ísfoldarprent- smiðja 1944. Árni Óla hefur lifað langan vinnudag sem blaðamaður, enda þótt hann sé enn maður á bezta aldri. Er hér um að ræða safn greina, sem flestar hafa áður birzt

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.