Dvöl - 01.01.1946, Qupperneq 78

Dvöl - 01.01.1946, Qupperneq 78
76 DVÖL En drottinn sjálfur, sem kviðlingum kátum hvíslaði þér í eyra, rís upp úr sæti og segir: K. N„ syngdu helmingi meira. Sýnishorn af því, hve J. St. getur tekizt vel að fara með ferskeytluna, er í kvæðinu „Magnús frá Miðhúsum". Hringhendan þín heitmey var, helzta vörn og gaman. En gjörfuleiki og gæfa þar gátu ei unniö saman. Þér var íslands ramma rót runnin fast í sinni. Það var bæði gull og grjót geymt í sálu þinni. Orð'akyngi eins og þín ekki í myrkrí fálmar. Mun hún, þegar móthald dvín, minna á Bólu-Hjálmar. Þú í volki veraldar vissir lærðum fleira. Þig af brunni þekkingar þyrsti alltaf meira. Þér skar nornin þröngan stakk — þung var æfiraunin. — Þjáning, fátækt, þp-eyta, flakk það voru skáldalaunin. Bókin er óræk sönnun þess, að Jónas Stefánsson frá Kaldbak hefur ekki „sokk- ið í þjóðahafið". Hún sýnir, að hann hefur verndað og ávaxtað „sjóðinn", — íslenzka pundið. Hann hefur þolað „útlegðina" svo vel, að með því hefir hann borið íslenzku þjóðerni gott vitni. Karl Kristjánsson. Lygn streymir Don: Mikael Sjólókoff. Útg. Bókaútgáfa Guðjóns Ó. Guðjónssonar. Mikael Sjólókoff er nú sem stendur einn kunnasti rithöfundur Rússlands. Hann hlaut Stalín-verðlaunin árið 1942, en það eru merkustu bókmenntaverðlaun Rússa. Frægð sína og viðurkenningu mun hann að mestu hafa hlotið fyrir skáld- söguna „Lygn streymir Don“. Þetta er stórbrotin og viðamikil skáldsaga. Þessi íslenzka þýðing, sem hér birtist í tveim bindum, mun vera fyrri hluti þessa mikla ritverks, en síðari hluti þess mun hafa verið ritaður nokkru síðar og ber að nokkru annað nafn. Fyrra, bindi þessarar íslenzku þýðingar gerist rétt fyrir heimsstyrjöldina fyrri 1914—18 og á styrjaldarárunum, en hið síðara í febrúar- og októberbyltingunni árið 1917. Þetta er stórbrotið skáldverk, margþætt og litauðugt. Það lýsir rúss- nesku bændalífi á breiðum grunni, her- mannalífi og grimmum orustum. Sögu- hetjurnar eru blóðheitt og tilfinningaríkt fólk, en trútt og náttúrlegt í háttum. Lýsingar allar eru frjálslegar og djarf- legar og persónurnar sterkar og heilar í gerð sinni. Fyrst í sögunni er lýst lífinu í rúss- nesku sveitaþorpi á bökkum Don, sem sígur seint og bungt eftir farvegi sínum á gresjunni. Sú lýsing er sönn og heill- andi. En þegar aftar dregur í bókina, og tekið er að segja frá styrjöldinni, verður svið sögunnar svo vítt og persónufjöldinn svo mikill og nöfn þeirra svo ótöm ís- lenzkum tungum, að hætt er við, að ís- lenzkir lesendur missi af hnoða sögunnar og finnist þeir staddir í myrkviði. Eink- um er hætt við þessu vegna þess, að svið sögunnar er okkur mjög framandi. En þegar líður á seinna bindið fellur sagan aftur i fyrri farveg sinn, og nær lesandinn þá aftur tökum á efni hennar. Hér skal ekki um það dæmt, hvernig
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Dvöl

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.