Valsblaðið - 01.05.1995, Qupperneq 19
íþróttamaður
Vals 1994
DAGUR
Sigurðsson
handknattleiksmaður
Dagur Sigurðsson, íþróttamaður Vals 1994, ásamt foreldrum sínum Sigga
og Ragnheiði og þeim yngsta -- Bjarka skemmtilega og efnilega.
Dagur í leik með landsliðinu. ÞeSs
verður varla langt að bíða að hann
reyni fyrir sér erlendis.
Dagur Sigurðsson, einn skemmti-
legasti og besti handknattleiksmaður
landsins, var kjörinn Iþróttamaður
Vals 1994. Verðlaunaafhendingin
fór fram í félagsheimili Vals að
Hlíðarenda á gamlársdag. Dagur er
ekki einvörðungu frábær íþrótta-
maður heldur glæsileg fyrirmynd og
er kominn í hóp fremstu íþrótta-
manna landsins þótt hann sé aðeins
22 ára að aldri.
Valsblaðinu lék forvitni á að vita
hvernig honum liði sem Iþrótta-
manni Vals. Dagur var nýkominn úr
sturtu, hreinn og strokinn, eftir að
Valur lagði FH að velli í bikar-
keppni HSÍ, 21:20, í 16 liða úrslit-
um. Leikurinn var æsispennandi á
lokamínútunum og ansi margir
áhorfendur nöguðu neglur og dósir.
„Þetta er mikil viðurkenning og
kom mér skemmtilega á óvart. Þetta
er titill sem mann dreymdi kannski
um að hljóta undir lok ferilsins en
mér þótti vænt um að verða út-
nefndur,” segir Dagur en þetta var í
þriðja sinn sem Iþróttamaður Vals
var valinn. Valdimar Grímsson var
kjörinn árið 1992 og Guðmundur
Hrafnkelsson ári síðar. „Núna er ég
kominn í hóp gamalreyndra kappa,”
segir Dagur brosandi.
Hvernig líður þér sem hand-
boltamanni í dag eftir mikið álag
á síðasta keppnistímabili og erfiða
HM keppni?
„Mér finnst ég óvenju ferskur.
Það hefur orðið smávægileg endur-
nýjun í liðinu, m.a. með tilkomu
Fúsa og Davíðs en þeir eru báðir
kraftmiklir og öflugir. Og ekki má
gleyma Skúla Gunnsteins. Okkur
gengur vel um þessar mundir eftir
smá hikst í upphafí móts.”
Er leiðin bein að titlunum
tveimur?
„Nei, þetta verður erfítt. Lið
Hauka og KA eru sterk um þessar
mundir þannig að það á margt eftir
að gerast í mótunum. En auðvitað
ætlum við alla leið.”
Dagur lýkur stúdentsprófí í vor en
hann fékk bláu kolluna í Verslunar-
skólanum fyrir tveimur árum. „Það
er kominn tími til að klára þetta.
Það er ekkert leyndarmál að mig
langar að breyta til og vera eitthvað
í útlöndum en mér liggur svo sem
ekkert á. Það er gott að vera í Val.
Við erum með mannskap til að vera
í toppbaráttunni næstu árin og
vissulega væri gaman að taka þátt í
því.”
19